staðan í samningaviðræðum milli SÍ og sérfræðilækna.
Herra forseti. Ég veit ekki hvort ég átta mig alveg á því hvað hæstv. ráðherra var að segja. Ég óska bara eftir skýrum svörum. Hefur þarfagreining farið fram fyrir allar sérgreinar? Já eða nei? Eru kröfulýsingar skýrar um magn og gæði? Já eða nei? Formaður Læknafélags Reykjavíkur segir í nýlegri grein í Læknablaðinu að svo sé ekki. Þarna hefur hæstv. ráðherra skyldum að gegna sem hann virðist ekki sinna. Ríkisstjórn sem lætur það óátalið árum saman að farið sé á svig við markmið laga um aðgengi að heilbrigðisþjónustu óháð efnahag og lætur sér fátt um finnast að þjónusta sérfræðilækna sé í raun aðeins fyrir þá sem hafa efni á henni verður að víkja. Við verðum að losna við slíka stjórnendur yfir heilbrigðiskerfi Íslands. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)