staðan í samningaviðræðum milli SÍ og sérfræðilækna.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir vekja máls á þessu brýna málefni. Jú, hv. þingmaður veit það jafn vel og ég að þarfagreining liggur auðvitað fyrir og kröfulýsingar liggja fyrir. Það kann að vera einhver ágreiningur um það hvað á að vera þar inni og hvað ekki og um það snúast samningaviðræður. Við vitum það að á fjölmörgum sviðum læknisfræðinnar hefur orðið þróun. Okkar er að skilgreina nákvæmlega hvaða þjónustu þegnar okkar þurfa. Um það snýst þetta. Síðan þegar samið hefur verið þá er magnþátturinn alltaf það sem þarf að semja um og þarf að horfa inn í, þ.e. hvert magnið er. Það blasir alveg við að það er ekki auðvelt mál að tilgreina magnið nákvæmlega. Það er auðveldara þegar við semjum um (Forseti hringir.) hvern lið fyrir sig, ég nefndi t.d. liðskiptaaðgerðirnar og endómetríósu. En þetta er það sem samningaviðræðurnar núna (Forseti hringir.) ganga út á. Ég bara bind vonir við það að við náum saman. Hins vegar er þróunin svo ör í mörgum sérgreinum, (Forseti hringir.) blessunarlega, að það þarf að vera gegnumgangandi endurskoðun á þarfagreiningu. (Forseti hringir.) Það er alveg hárrétt og það er það sem kemur fram í máli Læknafélagsins.
(Forseti (BÁ): Forseti minnir bæði hv. fyrirspyrjendur og hæstv. ráðherra á það að tíminn er takmarkaður í fyrirspurnum og svörum í óundirbúnum fyrirspurnum.)