áhrif Airbnb á húsnæðismarkaðinn.
Virðulegi forseti. Húsnæðismarkaðurinn og samspil hans við Airbnb-regluverk er það sem ég vil ræða við hæstv. ráðherra, enda skiptir máli að ræða um stöðu og kjör fólks á leigumarkaði sem býr margt við mjög svo erfiðar aðstæður. Hæstv. forsætisráðherra fór yfir það hér fyrr í þessum fyrirspurnatíma hvernig aðgerðum ríkisstjórnarinnar hefur verið beint til þeirra sem mest þurfa á að halda, þar með talið leigjenda og það er vel. En það er margt sem hefur áhrif á þessum húsnæðismarkaði og ferðaþjónustan heyrir jú undir hæstv. ráðherra. Ferðamenn eru taldir vera allt að 10% þeirra sem búa hér á landi eða eru hér á landi hverju sinni og talið er að eftir hrun hafi allt að fjórðungur íbúða á höfuðborgarsvæðinu fallið undir Airbnb-húsnæði. Það hefur verið sett regluverk en mig langar að spyrja hæstv. ráðherra hvort kannað hafi verið hvernig þessi staða er núna á húsnæðismarkaðnum, þ.e. áhrif Airbnb, og hvort ástæða sé til að breyta regluverkinu til þess sérstaklega að hlífa leigjendum, sem eru fyrir í viðkvæmri stöðu, fyrir áhrifum á okkar mjög svo þrönga leigumarkaði.