áhrif Airbnb á húsnæðismarkaðinn.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir að vekja máls á leigumarkaðnum og þeirri stöðu sem þar er uppi, enda brýnt samfélagslegt mál. Þeir sem eru á leigumarkaðnum finna svo sannarlega fyrir þeim þrengingum sem þar eiga sér stað. Hv. þingmaður spurði út í stöðuna á hinum svokallaða Airbnb-markaði og ef við förum aðeins yfir hana þá var það svo að framboð á gistirými var mest í ágústmánuði árið 2022 eða tæplega 4.600 heimili og þar af voru 52,8% staðsett á höfuðborgarsvæðinu og svo víða um land. Við vitum að það hefur átt sér stað breyting, m.a. út af því að Covid er búið, þannig að hlutfall þeirra leigjenda sem geta komist inn í þessar íbúðir sem voru áður á markaðinum hefur minnkað. Hv. þingmaður spurði hvað við værum að gera í því og hvernig við værum að skoða þetta. Þá er hægt að svara því til að í ráðuneytinu er til skoðunar að sveitarfélögin fái heimild til að ákveða hámarksdagafjölda heimagistingar í því skyni að mæta mismunandi aðstæðum þeirra að teknu tilliti til þarfagreiningar fyrir íbúðarhúsnæði í húsnæðisáætlunum í samræmi við tillögur í skýrslu starfshóps þjóðhagsráðs um aðgerðir og umbætur á húsnæðismarkaði. Í starfshópnum áttu sæti fulltrúar félags- og vinnumarkaðsráðherra, forsætisráðherra, innviðaráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra, Sambands íslenskra sveitarfélaga, Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar og aðila vinnumarkaðarins. Ég tel að það sé mjög brýnt (Forseti hringir.) að ræða kosti þess að skoða þetta frekar til að koma til móts við þá stöðu sem uppi er.