áhrif Airbnb á húsnæðismarkaðinn.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Ég fagna því að verið sé að skoða þennan hámarksdagafjölda. Ég tel gríðarlega mikilvægt að litið sé til miklu fleiri aðgerða, þegar kemur að því að styðja fólk á leigumarkaði, en beins stuðnings til leigjenda, eins mikilvægur og hann er svo að ég undirstriki það nú, en það er mikilvægt að sveitarfélögin komi til með að nýta þetta. Þar sem við erum hér að ræða um leigumarkaðinn langar mig líka að spyrja hæstv. ráðherra út í leigubremsu á markaðinn, en talsvert hefur verið rætt um það. Mig langar að heyra hver afstaða ráðherrans sé til þessa. Líkt og mér heyrðist erum við báðar hjartanlega sammála um að það verður að koma til móts við leigjendur.