Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 103. fundur,  8. maí 2023.

áhrif Airbnb á húsnæðismarkaðinn.

[15:50]
Horfa

menningar- og viðskiptaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F):

Virðulegi forseti. Það sem skiptir auðvitað mestu máli á leigumarkaðnum eða á húsnæðismarkaðnum er aukið framboð. Það er langbesta leiðin til að fást við þá stöðu sem uppi er. Ég er sammála hv. þingmanni að það skiptir máli að við grípum til aðgerða, ekki bara að við séum að horfa á vaxtabætur. Við þurfum líka að einblína á það hvernig við aukum framboðið með öllum tiltækum ráðum. Það er verið að gera það á vettvangi ýmissa aðila, eins og fram kom í svari mínu. Varðandi leigubremsuna þá erum við ekki með löggjöf um slíkt en við höfum hins vegar verið að skoða leigubremsur og hvernig þær hafa verið að koma upp, þetta er til að mynda eitthvað sem Danir hafa gripið til og ýmis samfélög. Það þarf auðvitað að horfa á kosti og galla þess. En ég er sammála hv. þingmanni að þegar staðan er eins og hún er í dag þá þarf að hugsa út fyrir kassann og grípa til aðgerða sem mögulega geta gagnast.