Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 103. fundur,  8. maí 2023.

stjórn fiskveiða.

537. mál
[15:58]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf):

Herra forseti. Hér er frumvarp sem lætur ekki mikið yfir sér en hefur samt talsverða þýðingu og ég mun nú fjalla stuttlega um efni þess. Það er í stuttu máli verið að breyta skilgreiningu á smábátum úr því að vera 15 metrar og 30 tonna, sem er allstórt skip, í 45 tonna skip, sem er miklu stærra skip. Það er sem sagt verið að teygja á umræddu krókaaflamarkskerfi og það er gert í nafni orkuskipta. Í þessu frumvarpi er verið að teygja og toga hvað krókaaflamarkssmábátur er, toga og teygja og setja það í grænan búning, með græna slikju. Hvers vegna er það gert? Jú, það er kannski verið að toga og teygja þessar skilgreiningar vegna þess að það er leynt og ljóst markmið stjórnvalda að renna þessum kerfum saman þannig að það verði bara eitt kerfi, aflamarkskerfið og krókaaflamarkskerfið, en það er sett í þennan græna búning. Hv. varaþingmaður Lilja Rafney Magnúsdóttir flutti hér ákaflega góða ræðu í fyrri umræðum um þessi mál og fór yfir það. Hún fór yfir það að þessi breyting hefði nákvæmlega ekkert með stefnu Vinstri grænna að gera og það væri í rauninni allt annað sem lægi að baki. Það hafa orðið breytingar á þessu krókaaflamarkskerfi áður með því að toga það og teygja hvað smábátur er, sem var gert um aldamótin, úr því að vera 6 tonn og færðist síðan í 15 tonna bát sem er allstór bátur. Síðan var það árið 2013 að sjálfur formaður Framsóknarflokksins sagði að smábátur væri 30 tonna skip. Það hefur leitt til þess að það hafa orðið gríðarlegar sameiningar. Þeir stóru, hákarlarnir í stóra kerfinu, hafa síðan gert sig gildandi í krókaaflamarkskerfinu, þ.e. fyrir smábáta, og eru þar að sanka að sér veiðiheimildum. Það er kannski tilgangurinn með þessu kerfi, að sameina þetta og rífa niður allar girðingar. Girðingarnar voru settar með því markmiði að setja einhverja byggðavörn, einhverja vörn fyrir minni fjölskyldufyrirtæki. Það sem hæstv. matvælaráðherra er að gera með þessu er að rýmka þessa skilgreiningu enn frekar og gefa það upp að þessi kerfi verði sameinuð. Setja þetta í grænan búning, græna slikju, það er hálfgert grænt slím sem liggur yfir þessu frumvarpi í nafni Vinstri grænna. Að vega svona að smábátaútgerð finnst mér alveg ótrúlegt. Samþjöppunin er komin yfir öll mörk.

Það sem maður er mest hissa á þegar maður fer yfir þessi frumvörp sem hæstv. matvælaráðherra leggur hér fram hvert á fætur öðru, m.a. það að leyfa togskipum að toga nánast uppi í harðri fjöru, setja grásleppuna inn í gjafakvótakerfi og síðan að toga og teygja skilgreininguna á smábáti upp í 45 tonna skip, er að það er alveg ljóst að það er ekki stafkrókur í stefnu Vinstri grænna sem er ástæðan fyrir þessum breytingum heldur virðast þetta vera bara einhver mál sem hafa verið á sveimi í ráðuneytinu og hún virðist líta á það sem sitt hlutverk í ráðuneytinu að horfa ekkert til stefnu Vinstri grænna heldur bara hleypa af færibandinu. Og hver setti á þetta færiband? Jú, það er forveri hennar í starfi, Kristján Þór Júlíusson, sem á örugglega heiðurinn af þessu frumvarpi og hugsuninni á bak við það.

Það er svo átakanlegt að sjá Vinstri græna hleypa hér að hverju frumvarpinu á fætur öðru sem gengur þvert á stefnu þeirra. Til þess að reyna að skilja eitthvað í þessu fór ég og las stefnu flokksins, Vinstri grænna, og leitaði einhvers staðar í gögnum hvort það væri einhvern stafkrók að finna sem gæti skýrt það að við værum hér að ræða að 45 tonna skip væri smábátur í nafni orkuskipta og hvort það væri von á einhverri tækni eða einhverju sem skýrði þetta frumvarp. Nei. Ég fór meira að segja aftur til ársins 2008. Þar er að finna í stefnuskrá Vinstri grænna, Hafið, bláa hafið, afar merkt stefnugagn sem ég tel að ætti fullt erindi við þingflokk Vinstri grænna núna og sérstaklega hæstv. matvælaráðherra. Þar kemur m.a. fram að smábátar eyða margfalt minna, bara brot af því sem þeir eyða af olíu, á hvert kíló af fiski sem þeir veiða og það ætti í rauninni að vera hið raunverulega takmark og markmið hæstv. ráðherra, að greiða götu smábáta og stuðla að því að fiskur sé veiddur með kyrrstæðum veiðarfærum. Nei, hún er ekki í því heldur kemur hvert frumvarpið á fætur öðru sem er beinlínis á móti stefnunni.

Þetta ágæta frumvarp hér er bara einn liður í því að auka samþjöppun í sjávarútvegi og mörgum finnst nóg um. En hvar eru frumvörp hæstv. ráðherra í anda stefnu flokksins? Hvar eru frumvörpin t.d. um að taka á kvótaþakinu, að menn komist ekki upp með það að fara langt fram úr 12% heimildinni? Þau er ekki að finna hér. Hvar er afgreiðslan og hvar er áhuginn hjá hv. þingmönnum Vinstri grænna í að leiða í gegnum nefndastarfið t.d. frumvarp um að auka félagslega þáttinn sem þeir lögðu fram allir sem einn hér á haustdögum í þinginu? Hann er enginn. En ef það á að setja eitthvað í kvóta eða rýmka fyrir togskip, stór skip eða samþjöppun, þá eru þeir allir á iði og vilja hleypa þeim frumvörpum í gegn.

Herra forseti. Ég sakna þess líka að Vinstri grænir reyni að mæta því ákalli sem kemur frá þjóðinni um tiltekt í sjávarútvegsmálum. Þegar menn stjórna málaflokki eins og matvælaráðherra og fá það framan í sig að 70% þjóðarinnar telji að málaflokkurinn sem hún stýrir sé spilltur þá ætti auðvitað að vera hér eitthvert frumvarp eða áhugi eða aðgerðir til að taka á því. Er eitthvað í bígerð um það, herra forseti, að taka t.d. á byggðakvótabraskinu, þegar byggðakvótar sem fara til þorpa sem standa höllum fæti, brotnar byggðir, lenda í höndunum á norskum auðmönnum eða að menn eru með einhverja málamyndagjörninga og veiðiheimildirnar lenda hjá útgerðum sem eru jafnvel komnar upp fyrir kvótaþakið? Hvar er áhugi Vinstri grænna á þeim málum? Hann er enginn. Ef það er minnst á þau mál, hvort sem það er í atvinnuveganefnd eða annars staðar, þá verða menn bara vandræðalegir, vandræðaleg þögn. Það er eins og það sé bara eitthvað sem eigi að þegja um, í staðinn fyrir að þarna séu tækifæri til að taka á þessu.

Síðan er alveg ljóst að það eru fleiri mál sem þarf að lagfæra. Það er kvótaþakið, byggðakvótarnir og síðan er það auðvitað vigtunin. Hvað á það að þýða að það séu þrjár aðferðir við að vigta fisk? Eftir því sem þú ert stærri í greininni hefur þú alltaf meiri meðgjöf frá hinu opinbera. Þá getur þú vigtað heima eða dregið frá ísprósentu sjálfur, en ef þú ert lítill og með litla vinnslu þá þarf að vigta allt á hafnarvog og helst að vera drónar og mannskapur yfir þér. Það er vitlaust gefið í þessari grein og það er kominn tími til þess að stjórnvöld girði sig í brók og taki á þessum málum því að þetta verður auðvitað bara vandræðalegra og vandræðalegra.

Það er áhugavert að lesa umsagnir um þetta frumvarp og í stuttu máli þá fær það mjög lága einkunn frá Landssambandi smábátaeigenda, það er sú atvinnugrein sem heldur utan um þann málaflokk sem frumvarpið fjallar um. Þar fær það mínus. En það fær plús hjá stórútgerðinni, frekar stóran plús, þetta sé bara gott mál. Það er áhugavert að hæstv. ráðherra og hv. atvinnuveganefnd gerir voðalega lítið, alla vega eins og hún er skipuð núna, með allar umsagnir frá Landssambandi smábátaeigenda. Það er eins og það hafi bara komið tilskipun frá Evrópusambandinu þegar kemur eitthvað frá SFS og það verði bara að færa það í lög og menn verða alveg aumir og kikna í hnjáliðunum og ég veit ekki hvað. Það er aumt að horfa upp á hæstv. matvælaráðherra, að hann skuli ekki standa í lappirnar og standa vörð um hagsmuni þjóðarinnar í þessari atvinnugrein. Þegar kemur einhver tilskipun frá SFS eða lítill bréfssnepill þá bugta menn sig og beygja og það er afar furðulegt.

Ég held að það felist hér mjög mikil tækifæri til breytinga og ég sakna þess virkilega að við séum ekki að fá einhver uppbyggileg frumvörp og skemmtileg til þingsins um það hvernig við getum t.d. aukið veiðar, fengið meira frelsi til strandveiða. Það er eins og menn séu hræddir við frelsið. Sérstaklega er það undarlegt að horfa upp á þingmenn Sjálfstæðisflokksins, sem tala stundum fyrir frelsinu, þegar kemur að sjávarútvegsmálum er eins og það sé einhver heit kartafla sem megi ekki snerta.

Ég sé að tíma mínum er brátt lokið hér og þess vegna langar mig að ræða eitt og það er verkstjórn hæstv. forsætisráðherra. Hæstv. forsætisráðherra ber ábyrgð á verkstjórn í ríkisstjórninni og að hún skuli haga henni með þessum hætti, taki ekki á þessum málum, auðlindamálunum með neinum hætti er aumt og ég vil líka segja að eins og mál eru í pottinn búin þá virðist hæstv. matvælaráðherra ekki geta átt fund með þeim minni í greininni, Landssambandi smábátaeigenda, eða taka þau mál til umræðu sem upp koma eða fleytt einu einasta máli áfram, hvort sem það er vigtun eða verðmyndun, og tekið á einhverju. Þá verður auðvitað að horfa til þess hvers vegna í ósköpunum hæstv. forsætisráðherra skipaði málum svo að hún skipaði hæstv. matvælaráðherra þannig að Svandís Svavarsdóttir sinnti því embætti. Í þingliði Vinstri grænna er hámenntaður fiskifræðingur sem hefði alveg getað lagt kalt mat á hlutina, farið yfir byggðasjónarmið, býr í dreifðri byggð, í Norðvesturkjördæmi. Nei, það var ekki gert. Ég er alveg gáttaður á því hvernig málum er háttað hér á Alþingi. Í stað þess að vera hér með myndugan ráðherra sem gæti tekið á hlutunum og sett sig inn í málin þá sitjum við uppi með hæstv. matvælaráðherra sem hleypir bara færibandi SFS á og gerir að lögum. Það er rosalega aumt, sérstaklega í ljósi þeirra skoðanakannana sem hafa sýnt að yfir 70% þjóðarinnar telja að það sé eitthvað brogað við ástandið í sjávarútvegsmálum þjóðarinnar.

Hér eru virkilega tækifæri og ég vonast svo sannarlega til þess að menn skoði þetta í ríkisstjórninni og fari ekki hér með fleiri svona mál í gegn sem eru bara aumari en allt sem aumt er.