Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 103. fundur,  8. maí 2023.

stjórn fiskveiða.

539. mál
[16:14]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf):

Herra forseti. Hér er mál sem hefur göfugt og jákvætt markmið, þ.e. að rafvæða smábátaflotann. En ávinningurinn fyrir þá sem fara í þessa rafvæðingu eru mögulega 100 kíló aukalega í hverjum túr og það er deginum ljósara að sá ávinningur er ekki nægjanlegur til þess að kosta búnað sem er fjórum til sex sinnum dýrari heldur en venjulegur vélbúnaður. Þannig að hér er um svona sýndarfrumvarp að ræða sem allir smábátasjómenn sjá í gegnum og ég á allt eins von á því að aðrir sem eitthvað þekkja til í sjávarútvegi sjái að þetta er svona til að slá ryki í augu fólks. Þetta frumvarp mun auðvitað ekki hafa mikla þýðingu. En mögulega er hugmyndin með þessu að búa til svona græna slikju í kringum Vinstri græna. En önnur frumvörp sem flokkurinn er núna með í meðferð þingsins slá þetta út eins og að leggja til að vera með aflmeiri togara alveg inni á grunnslóð og vera síðan með svona lítið frumvarp sem er náttúrlega hvorki fugl né fiskur. En það eru vissulega mikil tækifæri til breytinga og til að ná fram orkuskiptum. Einfaldasta leiðin til þess að ná fram olíusparnaði væri einfaldlega að gefa meira frelsi til handfæraveiða. Það kemur fram í riti Vinstri grænna sjálfra, Hafið, bláa hafið, að það sé margfalt minni olíukostnaður á hvert veitt kíló um borð í þeim bátum. Hvers vegna gera hv. þingmenn Vinstri grænna það mál ekki að sínu og koma hér og styðja það, þótt ekki væri annað, að tryggja 48 daga strandveiðar í sumar? Þeim væri meiri sómi að því og fyrst þá væri hægt að taka þetta frumvarp sem hér er til umræðu alvarlega. Meðan svo er ekki þá er þetta nú svolítið grín á kostnað smábátasjómanna.