raforkulög.
Herra forseti. Ég mæli fyrir hönd meiri hluta atvinnuveganefndar fyrir nefndaráliti með breytingartillögu um frumvarp til laga um breytingu á raforkulögum, nr. 65/2003. Frumvarpið felur í sér þá breytingu á raforkulögum að lagt er til að á eftir 3. mgr. 17. gr. a laganna komi ný málsgrein þess efnis að heimild dreifiveitna til að innheimta gjald af notanda til greiðslu viðbótarkostnaðar verði styrkt þegar sýnt er að kostnaður við nýja tengingu verði umfram gjaldskrá, þ.e. þegar fyrirséð er að væntanlegar tekjur dreifiveitu standi ekki undir eðlilegum stofn- eða rekstrarkostnaði vegna tengingarinnar. Sama eigi við hafi forsendur viðskipta breyst verulega. Þá er lagt til að dreifiveitur skuli í samráði við notendur setja almennar reglur, netmála, um rekstur og stýringu raforkudreifingar sem Orkustofnun samþykkir. Framangreint er í samræmi við þær kröfur sem gerðar eru til flutningsfyrirtækisins. Í báðum tilvikum er kveðið á um heimildir til setningar reglna og reglugerðar til nánari útfærslu.
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund gesti og bárust umsagnir. Greint er frá því í nefndaráliti sem liggur frammi.
Í kjölfar umfjöllunar nefndarinnar um málið vill meiri hlutinn árétta sérstaklega að tilgangur þeirra breytinga sem lagðar eru til með frumvarpinu er að tryggja að viðbótarkostnaður við nýjar byggingar falli ekki á almenna notendur. Við meðferð málsins fyrir nefndinni kom fram sjónarmið um að sú breyting sem lögð er til um heimild dreifiveitna til innheimtu viðbótarkostnaðar geti í raun losað um framkvæmdir. Núverandi ástand sé heftandi þar sem dreifiveitur verði að velta kostnaði út í tekjumörkin og dýrar tengingar hafi í för með sér kostnað fyrir alla. Með því að bæta ákvæði um heimild til innheimtu viðbótarkostnaðar við raforkulögin sé ætlunin að koma í veg fyrir að notendur dreifiveitna þurfi að bera aukinn kostnað vegna nýrra tenginga notenda þar sem ljóst er að kostnaður verði umfram gjaldskrá. Sá aðili sem óskar nýrrar tengingar verði því að bera þann umframkostnað í stað þess að hann leggist einnig á þá notendur sem fyrir eru.
Meiri hlutinn leggur til eina orðalagsbreytingu tæknilegs eðlis sem ekki er ætlað að hafa efnisleg áhrif á frumvarpið og þarfnast ekki sérstakrar umfjöllunar. Vísast að öðru leyti til nefndarálits meiri hluta atvinnuveganefndar.
Forseti. Að framansögðu virtu leggur meiri hluti atvinnuveganefndar til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð hefur verið grein fyrir.
Undir álit meiri hluta atvinnuveganefndar rita, auk þeirrar sem hér stendur, hv. þingmenn Stefán Vagn Stefánsson, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, Friðjón R. Friðjónsson, Gísli Rafn Ólafsson, Hanna Katrín Friðriksson, Helgi Héðinsson og Teitur Björn Einarsson.