raforkulög.
Herra forseti. Nú er það svo að Bændasamtök Íslands leggjast gegn samþykkt frumvarpsins, m.a. vegna þess að það er verið að opna á heimild á óútfærðri gjaldtöku á minni raforkuframleiðendur og geti þess vegna orðið þrándur í götu þess að dreifbýlið rafvæðist frekar og lagður verði steinn í götu orkuskipta og fleiri þátta. Það væri fróðlegt að fá að heyra frá hv. þingmanni hvernig hún telur rétt að bregðast við þessum sjónarmiðum og hvort það hafi verið tekið tillit til þeirra og hvernig verði tekið til þeirra þannig að þetta verði ekki þrándur í götu raforkuöryggis landsbyggðarinnar.