Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 103. fundur,  8. maí 2023.

raforkulög.

536. mál
[16:22]
Horfa

Frsm. meiri hluta atvinnuvn. (Berglind Ósk Guðmundsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir andsvarið. Þessi sjónarmið voru reifuð fyrir nefndinni og ráðuneytið svaraði þeim einnig í greinargerð með frumvarpi til laga. Varðandi þennan viðbótarkostnað er prinsippið að það eigi ekki að leggja aukakostnað á notendur kerfisins heldur að sá sem biður um nýja tengingu sem er umfram gjaldskrá greiði fyrir það umframgjald. Frumvarpið kveður á um heimild til setningar reglna og reglugerðar og þannig verði útfært nánar hverjar forsendurnar eru fyrir gjaldskránni og þeim breytingum sem verða. Ég bendi bara hv. þingmanni á að nákvæmlega sama orðalag og sama ákvæði er að finna hvað varðar flutningskerfin og ég bendi líka hv. þingmanni á að það kemur fram í nefndarálitinu og ég kom inn á það í framsöguræðu minni að það er einmitt svo, þvert á áhyggjur þingmannsins, að talið er að frumvarpið muni frekar greiða götu nýrra framkvæmda en að standa í vegi fyrir þeim.