raforkulög.
Herra forseti. Það er kannski rétt að taka það fram að þetta eru kannski ekki beint mínar persónulegu áhyggjur heldur er þetta álit frá Bændasamtökum Íslands sem við erum að ræða hérna. Það er alveg ljóst að gjaldtaka er ekkert að fara að greiða leiðina inn á þetta heldur fylgja augljóslega einhverjar takmarkanir. Það er rétt að taka þessa umræðu málefnalega. Það er ekki verið að auðvelda þetta heldur er miklu frekar verið að setja kostnað. Kostnaður er ekki að greiða fyrir því að menn tengist inn á netið þannig að ég held að menn verði að ræða það málefnalega hvernig við mætum því og það verði ekki einhverjir þröskuldar eins og Bændasamtök Íslands telja. Það eru þau sem hafa áhyggjur af þessu og þau eru einmitt að hugsa um raforkuöryggi og atvinnuuppbyggingu í hinum dreifðu byggðum og við megum ekki gera lítið úr því, herra forseti, þetta eru réttmætar áhyggjur. Ég held að reynslan sýni að þetta sé eitthvað sem skiptir verulega miklu máli. Við eigum miklu frekar að tryggja það og gera fólki auðveldara að fara af stað með svona framkvæmdir í stað þess að vera hér að leggja upp með óútfærða gjaldtöku. Ég held að það væri mjög gott að fá hérna betri mynd á hlutina.