Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 103. fundur,  8. maí 2023.

raforkulög.

536. mál
[16:25]
Horfa

Frsm. meiri hluta atvinnuvn. (Berglind Ósk Guðmundsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni síðara andsvarið. Ég er að sjálfsögðu ekki að gera lítið úr þeim umsögnum sem bárust um frumvarpið þegar það var í samráði en hins vegar tel ég að það sem kom fram fyrir nefndinni, við umfjöllun nefndarinnar, hafi skýrt þetta bara afskaplega vel. Þetta mun að sjálfsögðu ekki, og það var það sem kom fram fyrir nefndinni, eiga að hamla frekari framkvæmdum heldur kom það einmitt þvert á móti fram fyrir nefndinni að það að reglurnar voru ekki skýrar hafi hamlað framkvæmdum. Þar af leiðandi er mjög mikilvægt að við skýrum þessar reglur þar sem einhvern tímann hefur komið upp vafi um hver greiði fyrir þann umframkostnað sem verður af þessum nýju tengingum án þess að honum sé velt upp í tekjumörk fyrirtækjanna. Þar af leiðandi hafi hægst á framkvæmdum. Frumvarpið sé til þess fallið að auka einmitt og greiða leið þeirra framkvæmda sem þurfa að eiga sér stað því að við vitum vel að það þarf að styrkja flutningskerfi og dreifikerfi okkar, en þetta frumvarp tekur ekkert sérstaklega á akkúrat því máli. Þessum áhyggjum þingmannsins er svarað þokkalega vel, bæði í frumvarpinu og nefndarálitinu og ég hvet bara hv. þingmann til að kynna sér þau gögn.