Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 103. fundur,  8. maí 2023.

stjórn fiskveiða.

596. mál
[16:32]
Horfa

Frsm. meiri hluta atvinnuvn. (Bjarkey Gunnarsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég mæli fyrir hönd meiri hluta atvinnuveganefndar fyrir nefndaráliti með breytingartillögu um frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006 (afnám tegundatilfærslu í deilistofnum botnfisks o.fl.).

Frumvarpið felur í sér breytingar á 11. gr. laga um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006. Í fyrsta lagi er lögð til breyting er varðar tegundatilfærslu á deilistofnum botnfisks þess efnis að ekki verði hægt að nýta sveigjanleika í aflamarkskerfinu hvað varðar deilistofna botnfisks, þ.e. gullkarfa og grálúðu. Í öðru lagi er lagt til að heimilt verði að flytja allt að 15% af aflamarki deilistofna uppsjávartegunda (kolmunna, makríls og norsk-íslenskrar síldar) frá einu fiskveiðiári yfir á það næsta. Í þriðja lagi er lagt til að heimilt verði að veiða allt að 3% umfram aflamark hryggleysingja og allt að 5% umfram aflamark í deilistofnum uppsjávartegunda enda dragist umframafli frá við úthlutun aflamarks næsta fiskveiðiárs á eftir, í samræmi við heimildir sem gilda um aðra nytjastofna.

Við fjölluðum um málið í atvinnuveganefnd og fengum talsvert af gestum og umsögnum sem getið er nánar í nefndarálitinu sem liggur frammi.

Meiri hlutinn leggur til að gildistakan miðist við næstkomandi fiskveiðiár, þ.e. 1. september. Einnig leggur meiri hlutinn, í samráði við matvælaráðuneyti, til breytingar á b-lið 1. gr. frumvarpsins. Við vinnslu frumvarpsins var í ákvæðinu fyrst miðað við 10% flutningsheimild aflamarks uppsjávartegunda á milli ára en heimildin var hækkuð í 15% í kjölfar samráðsferlis. Þá hafi nýlega verið gerður samningur um aflareglur í kolmunna þar sem kveðið var á um 10% flutningsheimild. Algengt sé að samið sé um 10% flutningsheimildir milli ára í strandríkjasamningum, enda verði veiðar stöðugri og fyrirsjáanlegri innan samnings, t.d. vegna gagnkvæmra aðgangsheimilda og minni heildarveiði. Eðlilegt sé að hafa hærri flutningsheimildir þegar ekki er í gildi samningur en einnig mikilvægt að svigrúm sé til breytinga eða lækkunar flutningsheimilda komi strandríkin sér saman um slíkt í samningum.

Markmið íslenskra stjórnvalda með stjórn fiskveiða er lögum samkvæmt að stuðla að verndun nytjastofna og hagkvæmri nýtingu þeirra og tryggja með því trausta atvinnu og byggð í landinu. Í gildandi fjármálaáætlun er efni frumvarpsins á málefnasviði 13, Sjávarútvegur og fiskeldi, og fellur undir málaflokk 13.10. Frumvarpið fellur vel að meginmarkmiðum málefnasviðsins, þ.e. að skapa sjávarútvegi skilyrði til aukinnar verðmætasköpunar með sjálfbæra nýtingu og vistkerfisnálgun að leiðarljósi.

Í aflamarkskerfið er innbyggður sveigjanleiki hvað varðar tegundatilfærslu fisktegunda. Meginmarkmiðið með honum er að auðvelda útgerðarmönnum og sjómönnum að fara að settum reglum og stuðla að ábyrgri nýtingu fiskstofna. Með tegundatilfærslu er átt við reglu sem heimilar að afli í einni tegund dragist að ákveðnu marki frá aflaheimildum skips í annarri tegund. Vegna möguleikans á tegundatilfærslu í íslenska fiskveiðistjórnarkerfinu hafa Íslendingar veitt töluvert umfram samningsbundinn hlut sinn úr gullkarfastofninum síðustu ár, samkvæmt tvíhliða samningi við Grænland. Heildarveiði úr gullkarfastofninum hefur því verið umfram heildaraflamark og ráðgjöf. Vegna tegundatilfærslu hefur hins vegar heildarafli grálúðu verið minni en sem svarar samningsbundnum hlut Íslands. Engu síður er sá möguleiki fyrir hendi að sambærileg staða geti komið upp varðandi grálúðu og er nú varðandi gullkarfa og því eiga sömu röksemdir við. Ef ekkert er aðhafst eykst uppsafnaður umframafli Íslands í gullkarfa frá ári til árs og þar með afli umfram ráðgjöf, sem er ekki í samræmi við stefnu íslenskra stjórnvalda um sjálfbæra nýtingu fiskistofna. Umframaflinn fer að auki í bága við samning Íslands og Grænlands um deilistofna og að óbreyttu eru líkur til að Grænland rifti þeim samningi. Umræddri breytingu, sem ég fór yfir áðan, er einnig ætlað að hafa áhrif á samningaviðræður um aðra deilistofna og bæta stöðu Íslands við samningaborð við erlend ríki.

Virðulegi forseti. Þetta frumvarp snertir kannski fyrst og fremst þá íslensku útgerðaraðila og erlenda aðila sem veiða úr umræddum deilistofnum. Hagsmunaaðilarnir sem ég sagði hér áðan að við hefðum átt samráð við og fengið umsagnir frá voru m.a. Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi og Landssamband smábátaeigenda. Það kom auðvitað bæði fram stuðningur og andstaða við að dregið sé úr sveigjanleika fiskveiðistjórnarkerfisins. Ráðuneytið tekur fram að það er markmið frumvarpsins að draga úr sveigjanleikanum er varðar tegundatilfærslu deilistofna botnfisks, sem er í tegundunum gullkarfa og grálúðu. Þá má segja að verið sé að lögfesta heimild til færslu á aflamarki skipa í deilistofnum uppsjávartegunda (kolmunna, makríl og norsk-íslenskri síld) á milli ára. Þá er bent á að í ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar eru ítarlegar upplýsingar sem ná tólf ár aftur í tímann er varða tillögu um veiðar, aflamark fyrir Ísland og afla á miðunum. Um áhrif tegundatilfærslu má lesa í frumvarpinu.

Þá komu líka fram áhyggjur af gildistöku frumvarpsins og þess vegna lagði nefndin til breytingu um það, eins og ég sagði áðan, sem kemur til núna 1. september.

Virðulegi forseti. Ég þarf ekki að hafa þetta mikið lengra. Breytingunum er ætlað að tryggja að veiðar á gullkarfa og grálúðu séu í samræmi við útgefið aflamark og vísindaráðgjöf og stuðla þannig að sjálfbærri nýtingu þessara fiskstofna. Það er auðvitað mikilvægt að Ísland standi við samningsbundnar skuldbindingar sínar um skiptingu aflamarks í deilistofnum við aðrar þjóðir og þær breytingar sem hér eru lagðar til munu sporna við kerfisbundinni ofveiði gullkarfa og grálúðu ef svo ber undir.

Að framansögðu virtu leggur meiri hluti atvinnuveganefndar til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem ég hef hér gert grein fyrir.

Undir álit meiri hluta atvinnuveganefndar rita, auk þeirrar sem hér stendur, hv. þingmenn Stefán Vagn Stefánsson, Berglind Ósk Guðmundsdóttir, Friðjón R. Friðjónsson, Helgi Héðinsson, Teitur Björn Einarsson og Hanna Katrín Friðriksson.