leiga skráningarskyldra ökutækja.
Herra forseti. Ég mæli fyrir hönd meiri hluta atvinnuveganefndar fyrir nefndaráliti með breytingartillögu um frumvarp til laga um breytingu á lögum um leigu skráningarskyldra ökutækja, nr. 65/2015.
Með frumvarpinu er lagt til að lögum um leigu skráningarskyldra ökutækja, nr. 65/2015, verði breytt á þann veg að afnumið verði skilyrði um að ökutækjaleiga skuli rekin á fastri starfsstöð. Jafnframt er lagt til að kveðið verði skýrar á um skilyrði fyrir útgáfu og niðurfellingu starfsleyfis með það að markmiði að fyrirbyggja mistúlkun. Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að það sé einn liður í einföldun regluverks í ferðatengdri þjónustu og byggist m.a. á tillögum vinnuhóps sem skipaður var fulltrúum úr Stjórnarráðinu og Samkeppniseftirlitinu sem var falið að vinna úr tillögum Efnahags- og framfarastofnunarinnar, OECD, þar um, sbr. skýrslu OECD frá 10. nóvember 2020 um samkeppnismat íslenskrar ferðaþjónustu og byggingariðnaðar.
Með 2. gr. frumvarpsins er lagt til að í stað skilyrðis um fasta starfsstöð verði ökutækjaleigum skylt að hafa geymslustað fyrir skráningarskyld ökutæki sín og gert að tilkynna um hann til Samgöngustofu.
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund gesti og bárust umsagnir. Greint er frá því í nefndaráliti sem liggur frammi.
Meiri hluti atvinnuveganefndar leggur til breytingar á frumvarpinu sem eru lagatæknilegs eðlis og þarfnast ekki sérstakrar umfjöllunar. Vísast að öðru leyti til ítarlegri umfjöllunar í áliti meiri hluta atvinnuveganefndar.
Að framansögðu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð hefur verið grein fyrir.
Undir álit meiri hluta atvinnuveganefndar rita, auk þess sem hér stendur, hv. þingmenn Stefán Vagn Stefánsson, Berglind, Ósk Guðmundsdóttir, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, Friðjón R. Friðjónsson, Teitur Björn Einarsson og Hanna Katrín Friðriksson.