Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 103. fundur,  8. maí 2023.

Framtíð framhaldsskólanna.

[17:30]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. mennta- og barnamálaráðherra Ásmundi Einari Daðasyni fyrir að eiga þessa umræðu hérna með mér í dag. Ástæðan er ákvörðun hæstv. ráðherra um skipun stýrihóps um eflingu framhaldsskóla sem móta á aðgerðir til að ná markmiðum menntastefnu stjórnvalda til 2030 og stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar um eflingu verk- og starfsnáms. Verkefni hópsins hafa verið nokkuð í deiglunni og skiptar skoðanir á þeim, m.a. hér í þingsal. Óhætt er að segja að mesta athygli hafi vakið að kanna eigi mögulegar sameiningar framhaldsskóla, m.a. til að mæta samfélagslegum, faglegum og fjárhagslegum áskorunum, eins og kemur fram í fréttatilkynningu frá ráðuneytinu. Umræddar hugmyndir, komi þær til framkvæmda, eru eðli málsins samkvæmt nokkur breyting fyrir þá skóla sem um ræðir og munu óhjákvæmilega hafa áhrif á skipulag og kennslufyrirkomulag hlutaðeigandi skóla. Þeir skólar sem hafa verið í umræðunni eru um margt ólíkir. Í hópnum eru nokkrir af eldri skólum landsins, verkmenntaskólar, skólar með bekkjrakerfi, skólar með áfangakerfi, gamalgrónar stofnanir, skólar með nýjar áherslur í kennslutilhögun og skólar með sterk tengsl við atvinnulífið. Í þessum breiða hópi ólíkra skólastofnana er að finna ólíka menningu, ólíkan skólabrag og ólík tengsl við grenndarsamfélagið en það eru þeir þættir sem einna erfiðast er að sameina. Skólabragur er sá þáttur í starfsemi skóla sem lýsir starfsháttum og þeim anda sem ríkir innan skóla. Sá fjölbreytileiki sem er innan framhaldsskólakerfisins hér á landi hefur einmitt skapað ríka og ólíka menningu innan skólanna. Jákvæður og góður skólabragur er lykilþáttur í farsæld nemenda, hugtak sem ég veit að stendur ráðherra nærri. Skýr stefna um skólastarfið, samskipti við nærumhverfi, samskipti kennara og nemenda eru allt þættir sem hafa áhrif á anda og menningu hverrar stofnunar fyrir sig.

Þetta er m.a. ólíkt með skólum sem viðhafa áfangakerfi eða bekkjarkerfi. Sú nánd sem skapast innan bekkjar getur verið það félagslega haldreipi sem margir nemendur halda í þegar á reynir og skapar oft vináttu sem varir ævilangt. Það á vissulega við framhaldsskóla yfir höfuð enda sækir flest fólk framhaldsnám á miklum mótunartíma í sínu lífi. Ég vil engu að síður vekja athygli á því að bekkjarkerfi hafa í auknum mæli vikið fyrir áfangakerfinu. Með þessum áformum myndi þeim líklega fækka enn frekar. Líklega er bekkjarkerfi kostnaðarsamara fyrirkomulag á framhaldsnámi og kemur því heim og saman við leiðarstef hópsins um hagræðingu en ég fæ með engu móti séð að breytingar í þessu veru auki skólaþjónustu eða farsæld nemenda, eins og fjallað er um í fréttatilkynningu ráðuneytisins. Ég vil í þessu samhengi minnast á skýrslu um ytra mat MS, sem unnin var árið 2019 af Margréti Friðriksdóttur og Unnari Erni Þorsteinssyni, en þar kom m.a. fram að nemendur sögðust finna fyrir breytingum úr bekkjarkerfi í áfangakerfi. Í bekkjarkerfi væri, með leyfi forseta:

„…haldið betur utan um alla en í áfangakerfi eru nemendur í nýjum og nýjum hópum og þurfa að vera félagslega sterkir til að eignast nýja vini.“

Í fjölbreytilegu samfélagi, eins og við erum svo heppin að vera hluti af, er nauðsynlegt að huga að því að skólabragurinn sé sem fjölbreyttastur.

Virðulegi forseti. Þróun og endurskoðun á skipulagi og kennslufyrirkomulagi í skólum er nauðsynlegur þáttur í því að skapa heilbrigt umhverfi innan skólanna. Það held ég að við getum flest verið sammála um enda mega menntastofnanir ekki staðna. Það er þó ekki þannig að allar skólastofnanir eigi að vera steyptar í sama mót, hvað sem líður hagkvæmnissjónarmiðum. Einsleitni innan menntakerfis er einmitt sú stefna sem við þurfum að hverfa frá og feta leið fjölbreytninnar. Sameiningar framhaldsskóla þurfa ekki að útiloka fjölbreytileika. Skólarnir sem um ræðir eru engu að síður einstakir hver á sinn hátt og hafa þýðingarmiklu hlutverki að gegna í nærumhverfi sínu og gagnvart nemendum sínum sem sækja þá einmitt vegna þeirrar sérstöðu og þeirrar menningar sem þar er að finna. Það er mikilvægt að fara ekki of geyst inn í umræðu sem þessa þar sem engin sjáanleg rök, í augnablikinu a.m.k., eru fyrir þeim breytingum sem kanna á.

Hér eru mínar helstu spurningar til ráðherra vegna málsins. Ég veit að þær eru margar og verður flókið að reyna að svara þeim öllum hér á stuttum tíma en þær eru svona:

Hvaða markmið eru það í menntastefnu stjórnvalda til 2030 sem helst verður horft til við vinnu stýrihópsins?

Í fréttatilkynningu mennta- og barnamálaráðuneytis segir: Tillögur hópsins munu einnig byggja á markmiðum stjórnvalda um að auka farsæld barna og ungmenna, m.a. með samþættingu kerfa, aukinni skólaþjónustu og hagræðingu, eftirfylgni og samvinnu. Hvernig sér ráðherra fyrir sér að tillögurnar auki þjónustu? Hvernig sér ráðherra aukna skólaþjónustu og hagræðingu fara saman?

Hvað er það sem ráðherra sér fyrir sér að sameiningar framhaldsskóla, t.d. verk- og bóknámsskóla, geti skilað með tilliti til samfélagslegra og faglegra áhrifa?

Hvert er mat ráðherra á þeirri ályktun að fækkun framhaldsskóla leiði óhjákvæmilega til einsleitara menntasamfélags á Íslandi?

Í ljósi viðbragða við skipun stýrihópsins og fjölmiðlaumfjöllunar telur ráðherra að hafa hefði mátt víðtækara samráð, m.a. við framhaldsskólana sjálfa sem undir eru og nemendur þeirra, við skipun starfshópsins og við fyrstu skref í þessari vinnu og kynningu þeirra áforma eða hugmynda sem hér eru til umræðu?

Telur ráðherra að pólitískur stuðningur sé við sameiningar framhaldsskólanna?

Ég þakka hæstv. ráðherra aftur fyrir umræðuna því þetta er jú mjög mikilvægt málefni.