Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 103. fundur,  8. maí 2023.

Framtíð framhaldsskólanna.

[17:41]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka málshefjanda fyrir ágætar spurningar og áherslur en þegar stjórnarþingmaður þarf að spyrja ráðherra hvort hann hafi pólitískan stuðning við áform sín hefur ráðherrann sennilega ekki pólitískan stuðning. Efasemdir um fyrirætlanir hæstv. menntamálaráðherra má einnig ráða af grein sem annar stjórnarþingmaður, Diljá Mist Einarsdóttir, skrifað á vefinn Vísir.is á dögunum. Það má vel vera að einhverjar sameiningar og aukið samstarf á milli framhaldsskóla sé af hinu góða þó að vissulega vakni margar spurningar um valið á þessum átta skólum og um hversu flausturslega málið fer af stað. Það eru engar líkur á því að húsnæði á Akureyri losni við sameiningu MA og VMA þó að eitthvert samstarf á milli skólanna kunni að bæta rekstrarafkomu beggja. Engar líkur eru á því að 600 bóknámsnemendur Flensborgarskóla fari í Tækniskólann. Rekstrarlegar flækjur þarf að leysa þegar einkaskólar og opinberir eiga að renna saman og það á líka við um hugsanlega sameiningu Fjölbrautaskóla Suðurnesja og Keilis. Svo eru það áformin um sameiningu Kvennaskólans og Menntaskólans við Sund. Það fyrsta sem kom upp í hugann þegar ég heyrði um þau áform var: Hvers vegna ekki frekar sameining miðbæjarskólanna, MR og Kvennaskólans? Það má aldrei missa sjónar á því hvert hlutverk framhaldsskólanna er og fyrir hverja þeir eru. Nemendur þurfa gott aðgengi að skóla og nám við hæfi. Einsleitara skólakerfi væri afturför. Allir skólar eiga sína sérstöku sögu og skólabrag. Hver skóli er einstakur á sinn hátt, er samfélag út af fyrir sig sem veit sínu viti og koma þarf fram við af virðingu. Hæstv. mennta- og barnamálaráðherra verður að átta sig á því.