Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 103. fundur,  8. maí 2023.

Framtíð framhaldsskólanna.

[17:43]
Horfa

Berglind Ósk Guðmundsdóttir (S):

Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka málshefjanda. Það er ánægjulegt að við ræðum hér í þessum þingsal framtíð framhaldsskólanna og þá líka í víðara samhengi. Í brennidepli er auðvitað þessi umræða um sameiningu framhaldsskólanna en fjölmörg tækifæri geta einmitt leynst í meiri samvinnu og samhæfingu milli skóla.

Það er einmitt vegna stöðu drengja í skólunum, mikils brottfalls úr námi á Íslandi í alþjóðlegum samanburði, vanlíðunar íslenskra nemenda og hrakandi læsis og námsárangurs að ég set þá frumforsendu fyrir þessari umræðu um framhaldsskólana að markmiðið með uppstokkun og breytingum á skólakerfinu taki alltaf mið af því að hér sé verið að bæta gæði náms. Þegar tekin var ákvörðun um að taka upp þriggja ára kerfi var staðan slæm. Íslenska skólakerfið hafði áratugum saman skilað verri niðurstöðu en önnur skólakerfi innan OECD, við vorum eina landið innan OECD þar sem tók 14 ár að undirbúa nemendur fyrir háskólanám, brottfall var gríðarlegt. Forsendan fyrir breytingum þá var að bæta námið og nýta betur tíma framhaldsskólanema. Síðan þá hefur ekki verið framkvæmd úttekt á þessum málum. Vandinn er því miður sá að heimsfaraldurinn mun óumflýjanlega hafa veruleg áhrif á allar mælingar á þessum tíma. Andleg vanlíðan barna og ungmenna er ekki séríslenskt vandamál. Okkur er tíðrætt um vanda drengja í skólunum hér. Höfum eitt á hreinu: Strákar eru ekki verr gefnir að meðaltali en stelpur. Stærsta breytan er sú að stór hluti drengja er illa læs þegar þeir klára grunnskólann. Má vera að sú staðreynd sé ástæða þess að árangur og brottfall drengja úr framhaldsskólum er eins og raun ber vitni?

Forseti. Vandamálið er ekki drengirnir heldur skólakerfið og spurningin er þessi: Erum við að mæta þessum vanda í dag? Ég vil hvetja hæstv. menntamálaráðherra að beita sér af meiri krafti fyrir bættum gæðum náms á framhaldsskólastigi með öllum ráðum og dáð.