Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 103. fundur,  8. maí 2023.

Framtíð framhaldsskólanna.

[17:45]
Horfa

Inga Sæland (Flf):

Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka málshefjanda, Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur, fyrir að hefja máls á því mikilvæga máli sem framhaldsskólinn okkar er, sem börnin okkar eru, og hæstv. ráðherra fyrir að vera með okkur hér í dag. Sérstaklega langar mig að þakka hv. þm. Berglindi Ósk Guðmundsdóttur sem var með ræðu hér á undan mér. Ég hefði ekki getað sagt þetta betur sjálf, hún hittir naglann gjörsamlega á höfuðið hvað varðar líðan barna í skólum í dag og ungs fólks. Það er bara þannig. Ég hélt næstum því að þetta væri ég sjálf sem væri að tala þarna. Þakka þér fyrir, hv. þingmaður, þetta var snilldarræða.

Það sem mig langar til að vita sérstaklega og vekur furðu mína er, eins og hv. þm. Oddný G. Harðardóttir nefndi, hvernig á að klastra þessum skólum saman. Og hvar er samtalið við nemendurna sjálfa? Mér dettur í hug kjörorð Öryrkjabandalagsins, það hefur alltaf verið: Ekkert um okkur án okkar. Er þetta enn eitt excel-skjalið, fjárhagsleg hagræðing, og skiptir engu máli hvernig þeim líður sem verða fyrir henni? Það er athyglisvert, eins og hv. þm. Oddný G. Harðardóttir nefndi áðan, að við erum t.d. að tala um Verkmenntaskólann á Akureyri og Menntaskólann á Akureyri. Þetta er ekki bara klikkað, þetta er algerlega klikkað. Þetta getur engan veginn gengið upp.

Ég segi bara enn og aftur: Hvernig væri að við byrjuðum á því að byggja grunninn undir framtíð barnanna okkar og kenndum þeim að lesa strax í grunnskóla? Þannig gæti þeim liðið betur þegar þau koma upp í framhaldsskólann. En eina ákallið sem ég fékk að heyra, og við frambjóðendur í kosningabaráttunni 2017, þegar við töluðum við nemendur var: Getum við fengið frekari sálfræðiþjónustu inn í framhaldsskólana? Okkur líður illa.