Framtíð framhaldsskólanna.
Forseti. Samkvæmt fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar eru helstu áskoranir á málefnasviði framhaldsskóla, með leyfi forseta:
„Framhaldsskólar standa frammi fyrir miklum umbreytingum vegna hlýnunar jarðar og örra tæknibreytinga sem hafa áhrif á öllum sviðum samfélagsins og þurfa jafnframt að mæta fjölbreyttum námsþörfum einstaklinga og gera þeim kleift að ljúka námi.“
Í stjórnarsáttmála er lögð áhersla á að efla iðn- og verknám um allt land og fjölga útskrifuðum úr starfs- og tækninámi og samkvæmt fjármálaáætlun er gert ráð fyrir því að á hvern 6,1 útskrifaðan nemanda úr verknámi verði tíu útskrifaðir úr námi til stúdentsprófs sem er fjölgun upp á rétt rúmlega 1%, úr 36,7% í 37,9%. Það er dálítið undarlegt hlutfall því að hlutfall innritaðra í verk- og tækninám á hins vegar einungis að vera rétt rúmlega 34%. Möguleg útskýring á því gæti verið að það eru færri sem falla úr námi í verk- og tækninámi, sem er einmitt annað sem ríkisstjórnin ætlar að laga einhvern veginn, að ná útskriftarhlutfallinu innan fjögurra ára úr tæplega 62% upp í 65% og minnka brottfall úr 20% niður í 17%.
Eftir þessa gríðarlega spennandi upptalningu á prósentum verðum við að staldra aðeins við og hugsa: Telst 1% hlutfallsleg aukning á fjölda þeirra sem útskrifast með verk -og tæknimenntun í alvörunni sem efling verk- og tæknináms? Svarið við því er að hluta til að finna í áhættugreiningu málefnasviðs framhaldsskóla, með leyfi forseta:
„Áhætta er einnig falin í því að ekki takist að manna stöður starfsnámskennara og að tryggja nægt húsnæði til að bregðast við fjölgun nemenda í starfs- og tækninámi.“
Viðbrögðin nú virðast hins vegar vera að leggja til sameiningu Menntaskólans við Sund og Kvennaskólans í Reykjavík sem eru áhugaverð viðbrögð. Meira um það í næstu ræðu.