Framtíð framhaldsskólanna.
Herra forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur fyrir að hefja þessa umræðu. Ríkisstjórnin talar allt of lítið um menntamál hér í þingsal og því miður virðist þurfa ósætti í hennar röðum til að svo verði. Það er reyndar ekki ýkja langt síðan þessi ríkisstjórn fór í átak til að fjölga verknámsnemum. Farið var í auglýsingaherferðir og ungu fólki var talin trú um að þetta væri rökrétt næsta skref. Hvað gerðist svo í framhaldinu? Það var ekki pláss fyrir alla þá sem sóttu um. Það gleymdist hreinlega að gera ráð fyrir að herferðin gæti skilað árangri og að eftirspurnin myndi aukast. Skólarnir voru ekki undir það búnir að taka við svona mikilli aðsókn og því þurfti að slá draumum fjölmargra unglinga á frest. Á sama tíma er staðan sú að það vantar fólk með þessa menntun út í samfélagið.
Nú stefnir ríkisstjórnin að því að sameina skóla. Þar er algjört lykilatriði að sameiningar, ef af þeim verður, séu til þess fallnar að efla námið og bæta aðstæður, að skólarnir geti þannig betur nýtt þá aðstöðu sem þeir hafa yfir að ráða ásamt því að mannauðurinn sé vel nýttur. Hagræðingin þarf að skila því að skólarnir verði sterkari og betri. Ef það er ekki útkoman er betur heima setið en af stað farið. Hæstv. ráðherra þarf að hafa fulla vissu um að fari hann í þessa vegferð verði það að vel athuguðu máli og að hagsmunir nemenda verða ávallt settir í fyrsta sæti.
Virðulegur forseti. Þetta er viðkvæmt verk og vandasamt. Kannski ætti ríkisstjórnin að byrja á því að æfa sig með því að sameina eitthvað af ráðuneytunum.