Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 103. fundur,  8. maí 2023.

Framtíð framhaldsskólanna.

[17:52]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Ég vil þakka málshefjanda fyrir þessa mikilvægu umræðu sem hér á sér stað. Þær eru kaldar kveðjurnar sem hæstv. ráðherra barna- og menntamála, Ásmundur Einar Daðason, sendir til kvenna á Íslandi þessi dægrin. Hann hefur nú lagt til að leggja niður Kvennaskólann í Reykjavík og binda þar með enda á 150 ára sögu skólans. Það voru konur sem stofnuðu skólann á sínum tíma, konur sem ekki fengu inni í Lærða skólanum, sem nú heitir Menntaskólinn í Reykjavík, og gripu til sinna ráða, konur sem mátu menntun mikils og skildu að hún væri grundvöllur betra lífs og sjálfstæðis. Skólinn ruddi brautina í menntun kvenna og starfar enn í dag við góðan orðstír og er eftirsóttur af nemendum þessa lands ár hvert. Ráðherranum virðist standa á sama um þetta allt og telur viðeigandi að loka einfaldlega dyrunum. Þetta eru í raun ótrúleg skilaboð ráðherrans og Framsóknarflokksins til kvenna, að þeirra saga skipti ekki meira máli en þetta og að slaufa megi henni með einu pennastriki. Engar fleiri ungar konur skulu fá möguleika á því að setja mark sitt á þessa 150 ára sögu Kvennaskólans. Það má vona að af þessu verði ekki og ráðherrann verði hrakinn til baka með þessar tillögur sínar. Það er auðvelt að tala og þykjast styðja sögu og réttindi kvenna en annað er að standa við það og velja leiðir við völd sem endurspegla þá afstöðu.

Virðulegur forseti. Þann 24. apríl birtist á vef mennta- og barnamálaráðuneytisins frétt undir yfirskriftinni Stýrihópur um eflingu framhaldsskóla. Þar er sagt frá því að stýrihópur, sem er til umræðu hér, eigi að skila fyrstu tillögum til menntamálaráðherra í maí. Í dag er 8. maí. Það á að skila fyrstu tillögum fyrir mánaðarlok. Hvers lags samráð halda menn að sé raunverulega að eiga sér stað þarna? Þetta er auðvitað bara enn eitt sýndarsamráð þessarar ríkisstjórnar sem við okkur blasir núna. Að halda öðru fram stenst einfaldlega enga skynsemisskoðun. Hæstv. ráðherra sagði hér áðan orðrétt, með leyfi forseta:

„… ekki hafa verið teknar ákvarðanir um sameiningar eða samnýtingu skóla formlega.“

Þetta sagði hann orðrétt; það hafa ekki verið teknar ákvarðanir um sameiningu formlega. (Forseti hringir.) Þetta sagði hæstv. ráðherra hérna rétt áðan í pontu. Trúir því einhver, þegar stýrihópurinn á að skila af sér fyrstu niðurstöðum innan (Forseti hringir.) mánaðarins, að hér sé raunverulegt samráð fram undan?