Framtíð framhaldsskólanna.
Virðulegi forseti Ég vil þakka hv. þingmanni Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur fyrir að óska eftir þessari umræðu og hæstv. ráðherra fyrir svörin. Þar sem verkefni stýrihópsins, sem ráðherra setti á laggirnar, er að móta aðgerðir til að ná megi markmiðum menntastefnu stjórnvalda til ársins 2030, auk þess sem fram kemur í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar um eflingu verk- og starfsnáms, leikur mér forvitni á að vita hvort undir í þeirri umræðu sé lengd námstímans á framhaldsskólastigi. Markmið menntastefnu er jú að veita framúrskarandi menntun í umhverfi þar sem öll geta lært og öll skipta máli. Í ljósi þess að meðaleinkunn nemenda sem útskrifast úr framhaldsskólum hefur lækkað frá því að bóklegt framhaldsskólanám var stytt úr fjórum árum í þrjú, kemur til álita af hálfu ráðherra að ráðast í aðgerðir til að bregðast við þessu og/eða snúa aftur til fyrra fyrirkomulags? Er það verkefni stýrihópsins að skoða reynsluna af styttingu framhaldsskólans? Í þessu samhengi kæmi alveg til greina að mínu mati að gera frekari greinarmun á verk- og bóknámi, sér í lagi vegna eðli þess og mismunandi krafna um eðli þess og lengd námstíma. Á árunum fyrir hrun var lagt af stað í það verkefni að brúa bilið enn frekar á milli grunnskólastigsins og framhaldsskólastigsins, gott ef ekki með sérstökum verkefnum til reynslu. En í kjölfar hrunsins héldu rekstraraðilar skólanna að sér höndum með margt, eðli málsins samkvæmt, og þessi brúarverkefni lögðust af ef ég man rétt, virðulegi forseti. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra hvort hann sjái tækifæri í frekari samlegð á milli skólastiga til eflingar menntunar barna og ungmenna?