Framtíð framhaldsskólanna.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur kærlega fyrir þessa mikilvægu umræðu og hæstv. ráðherra fyrir sín svör. Framhaldsskólarnir eru afskaplega mikilvægur hluti af menntakerfinu og samfélaginu okkar og staða þeirra og þróun ratar reglulega í umræðuna. Við erum með framhaldsskóla um allt land og margir þeirra hafa skapað sér sérstöðu í tengslum við nám, sögu og félagslíf. Og liggur ekki framtíð framhaldsskólanna í því, í þeirri sérstöðu sem þeir hafa skapað sér? Það er kannski óþarfi að margir skólar kenni nákvæmlega sama sérhæfða fagið og tækifæri eru fólgin í því að skólar um allt land skapi sér enn meiri sérstöðu og þrói ákveðnar námsleiðir. Nemendur gætu þá jafnvel sótt ákveðna námsleið í þeim skólum, annaðhvort með fjarnámi eða í staðnámi, og þá jafnvel í samstarfi milli skóla. En ef nemendur vilja stunda nám í heimabyggð þurfum við að skoða hvaða tækifæri við höfum til að koma til móts við þá. En við höfum fjölbreyttar lausnir. Ef nemendur vilja prófa eitthvað annað, flytja jafnvel að heiman og búa á heimavist til að stunda nám annars staðar, þá eiga þeir líka að geta það. Sjálf hef ég talað mjög mikið fyrir því að byggð verði heimavist hér á höfuðborgarsvæðinu fyrir þau sem sækja nám á höfuðborgarsvæðinu. Það er eftirspurn eftir því og það skiptir mjög miklu máli fyrir þá nemendur sem flytja á höfuðborgarsvæðið að þeir eigi möguleika á öruggu húsnæði til að geta verið í náminu sem þeir vilja vera í. Nemendur eiga að geta farið í nám á sínum eigin forsendum, sama í hvaða nám eða hvar námið er, og við þurfum að geta komið til móts við þann hóp.