Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 103. fundur,  8. maí 2023.

Framtíð framhaldsskólanna.

[18:00]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Ég þakka fyrir þessa mikilvægu umræðu, sem við mættum gjarnan taka oftar, um menntakerfið okkar. Í stjórnarsáttmálanum er lögð áhersla á að efla iðn- og verknám um land allt og fjölga útskrifuðum úr starfs- og tækninámi. Forsenda velferðar og lífsgæða á Íslandi er öflugt og fjölbreytt atvinnulíf þar sem til staðar er vel menntað fólk sem stuðlar að nýsköpun og þróun. Bregðast þarf við því misræmi sem er milli þeirrar menntunar sem er í boði og þarfa atvinnulífsins og vinnumarkaðar sem sækist eftir starfsfólki með sérhæfða færni í verk- og tæknigeira.

Liður í því að hækka menntunarstig þjóðarinnar er að draga úr brotthvarfi úr framhaldsskóla og hækka hlutfall þeirra sem ljúka námi þaðan. Brotthvarf hefur aukist og þá mest hjá drengjum og staða drengja í íslensku menntakerfi er og þarf að vera sérstakt umræðuefni okkar hér. Þá vil ég sérstaklega nefna þau rauðu ljós sem blikka nú þegar við horfum á velsældarvísana okkar í fjármálaáætluninni þar sem þeim fjölgar sem ekki eru í vinnu, námi eða starfsþjálfun. Það er mikið áhyggjuefni og við því þarf að bregðast.

Við höfum talað fyrir því að opna háskólana og ég var ein af þeim sem lagði fram frumvarp þess efnis að háskólar eigi ekki bara að taka við þeim sem lokið hafa stúdentsprófi heldur eigi að hafa möguleika á því að taka á móti fólki sem lokið hefur iðn- eða verknámi. Ég held því að þær áherslur sem hér hefur verið varpað fram og áherslur háskólaráðherra fari mjög vel saman, að ná því markmiði að fjölga drengjum sem stunda nám og klára nám, hvort sem það er iðn- eða verknám eða háskólanám. Og það er ekkert annaðhvort eða, það getur alveg verið bæði.

Ég var ánægð að heyra hæstv. ráðherra tala um að nám sé kraftmikið og dýnamískt ferli. Það er það svo sannarlega. Þess vegna megum við ekki loka okkur of mikið í gamaldags hugsunum um box. Iðn- og starfsnám og bóknám getur vel farið saman. Ég vil hvetja hæstv. ráðherra til að horfa til verksins Næstu skref (Forseti hringir.) og tryggja framgang þess en það hefur hjálpað námsráðgjöfum mjög við að aðstoða ungmennin okkar við að finna sér farveg.