Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 103. fundur,  8. maí 2023.

Framtíð framhaldsskólanna.

[18:07]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V):

Frú forseti. Þetta er áhugaverð umræða um mikilvægan málaflokk, góðar spurningar og hæstv. ráðherra fór ágætlega yfir málið. Það er ljóst að verkefnið er ærið. Markmiðið er auðvitað betri og sterkari skólar sem svara þörfum nemenda og þar sem farið er vel með skattfé. Mig langar að leggja svolítið út af síðustu spurningu hv. málshefjanda, Bjarkeyjar Olsen Gunnarsdóttur, sem spyr hvort ráðherra telji að pólitískur stuðningur sé við sameiningarnar. Það er ekki djúpt í árinni tekið hjá mér að segja að þarna felist óbein skilaboð um afstöðu Vinstri grænna, þau styðji málið ekki fyrst svona er spurt. Og Sjálfstæðismenn virðast heldur ekkert hoppandi kátir með þessi áform. Hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttir skrifaði grein nýlega þar sem hún fór yfir tímasetninguna, að hún vekti furðu í ljósi þess að viku áður en sameiningaráformin voru tilkynnt hafi verið skipaður stýrihópur um eflingu framhaldsskóla sem eigi eftir að skila tillögum auðvitað um framtíðarskipulag framhaldsskólans með það fyrir augum einmitt að auka gæði náms og bregðast við breytingum í umhverfi skóla. Ég get auðvitað tekið undir það hjá hv. þingmanni að þetta er athyglisverð tímasetning hjá ráðherra. Staðreyndin er sú að það verður ljósara með hverjum deginum að þessi ríkisstjórn er höfuðlaus her. Hver ráðherra gerir bara það sem honum sýnist og vonast til að vera ekki stoppaður af samstarfsflokkunum. Þingmenn skrifa síðan greinar og efna til umræðu hér í þingsal með ekki svo mjög dulbúnum skilaboðum um andstöðu. Málið er það, þó að mér sé nokk sama um hjónabandið á stjórnarheimilinu, að á meðan stjórnarflokkarnir standa í þessum skæruhernaði hver við annan þá bíða hinar stóru áskoranir sem heimili landsins standa frammi fyrir t.d. og fyrirtæki og forsvarsfólk í skólamálum og svo mætti lengi telja eru með mjög óskýr skilaboð. Það bætist einfaldlega á biðlista ríkisstjórnarinnar, (Forseti hringir.) biðlista yfir brýn verkefni sem komast ekki lönd né strönd, þar með talið menntamál. Mér finnst að því leyti til þessi umræða verulega upplýsandi.