Framtíð framhaldsskólanna.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin hér áðan og þeim sem tekið hafa þátt í umræðunni. Ég ætla að taka undir það að í menntakerfinu er að sjálfsögðu mjög gott fólk og góðir nemendur. Tækniþróun er talsverð og hún á eftir að verða enn meiri og gerist í raun á ljóshraða, ef svo má að orði komast. Hér var verið að nefna fækkun nemenda o.s.frv., en við megum ekki gleyma að taka með alla innflytjendurna sem koma hingað til lands og í þeim hópi eru væntanlega líka börn og unglingar. En þetta er samt áhyggjuefni, þessi viðbrögð sem við sjáum í fréttum og á netmiðlum, m.a. að kennarafélag MS hafi ályktað um óánægju sína, og það bendir til þess að upphafið hefði átt að vera með öðrum hætti. En gott og vel, sá hópur sem nú er að störfum þyrfti væntanlega að vera öðruvísi samsettur og þar þyrfti t.d. að vera fulltrúi nemenda. Ég spyr ráðherra hvort hann sé tilbúinn til og telji ástæðu til að skoða það.
Síðan vil ég segja, af því að hér var talað um námsefni og ýmislegt annað, að námsefni og námskerfi eru ólík í skólum og auðvitað einnig skólabragurinn. Liggur ekki fyrir að tíminn sem ætlaður er til þess að koma með tillögur í svona stóru og viðkvæmu máli er of skammur? Ég verð að spyrja hvort ráðherra sjái fyrir sér að ef áfangaskólar og bekkjarkerfisskólar sameinast þá verði það fyrirkomulag áfram, þ.e. hvort tveggja. Eða eigum við að gera ráð fyrir því að bekkjarkerfið hverfi? Getur hvort tveggja verið áfram?
Ég ætla ekki að halda því fram að það geti ekki hentað að sameina einhverja skóla, nýta betur fjármuni eins og ráðherrann nefndi. En ég spyr líka: Hvað með litlu skólana, sem væntanlega eru erfiðari rekstrareiningar en þeir stærri? Megum við eiga von á því í framhaldinu að minni skólar í dreifbýlinu verði settir undir sameiningarhatt? Við þurfum nefnilega að sjá að þessar fyrirætlanir skili bæði faglegum og samfélagslega jákvæðum áhrifum? Það er mikið óöryggi í framhaldsskólakerfinu eftir þetta og mörgum finnst aftan að sér komið með þessari framsetningu. Það var þess vegna sem ég vildi eiga þessa umræðu við hæstv. ráðherra.