Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 103. fundur,  8. maí 2023.

Framtíð framhaldsskólanna.

[18:15]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Ásmundur Einar Daðason) (F):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka fyrir þessa mjög svo gagnlegu umræðu og ég fagna henni og þeim ræðum sem hér hafa verið fluttar. Ég næ því miður ekki á tveimur mínútum að svara öllum þeim sem beindu spurningum til mín en mér finnst þetta gefa tilefni til þess að við tökum menntamál oftar upp í þingsal Alþingis. Fyrst vil ég þó segja um þessa vinnu sem nú er að fara af stað, varðandi samtal við alla aðila, og við þá sem halda því fram að þessi stýrihópur sé settur af stað með það að markmiði að ákveða nákvæmlega hvernig niðurstaðan á að vera að ég hvet þá einstaklinga til að skilgreina betur í eigin huga hvernig þeir líta á samtal og samvinnu og samráð vegna þess að m.a. í fréttatilkynningu menntamálaráðuneytisins er talað um mögulega samvinnu eða sameiningar viðkomandi skóla. Þegar við förum í svona vinnu erum við að tala um að fara í frummatsgreiningar á því hverju þetta geti mögulega skilað. Ráðherrann sem hér stendur ætlar ekki að fara að svara því nákvæmlega hvort þetta muni skila einhverju eða ekki. Það er ekki verið að horfa eingöngu á fjármagn í því sambandi, af því að einhverjir hafa nefnt það hér, heldur líka á gæði, styrkleika, möguleika á því að sækja fram fyrir nemendur á þeim svæðum og í þeim skólum sem um ræðir.

Virðulegur forseti. Þegar við ræðum þetta líka, allar þær áskoranir sem nefndar voru hér, þá vil ég nefna aðgerðir sem við erum með í aðgerðaáætlun menntastefnu sem lýtur m.a. að námsgögnum, lýtur að skólaþróun þar sem við þurfum að ráðast í skólaþróunarverkefni á öllum skólastigum, aðstoð og þjónustu við kennara, m.a. til þess að takast á við breytingar sem eru að verða. Lítum á skólaþjónustu. Lítum á einstaklingana af erlendum uppruna, hvernig við þurfum að efla þá, námsgögn o.fl. Það kostar líka fjármuni og það sem ég nefndi í mínum upphafsorðum var að við höfðum metið þessar breytingar á um 3 milljarða á ársgrunni. Við erum að fá til þess 1 nýjan milljarð á hverju einasta ári en þá vantar 2 milljarða upp á. Það sem við erum að velta fyrir okkur er: Er mögulegt að nýta fjármagn betur, m.a. vegna húsnæðis, og skapa þá svigrúm til að ráðast í þessi verkefni sem þarf til þess að efla framhaldsskólastigið? (Forseti hringir.) Það er það sem á að greina. Það er það sem á að skoða. Ef svarið verður að það verði ekki til þess að bæta gæði náms þá að sjálfsögðu förum við ekki í það. En ég er líka til samtals við hv. fjárlaganefnd um aukið fjármagn til framhaldsskólans og ég mun ekki neita því ef niðurstaðan yrði sú hjá fjárlaganefnd að auka fjármagn til framhaldsskólanna.