Notkun ópíóíðalyfja.
Hæstv. forseti. Mig langar að þakka fyrir þessa mikilvægu umræðu en ég get ekki orða bundist af því að ég held að við séum ekki hér að fjalla um afleiðingar afgreiðslutíma veitingastaða, kráa eða klúbba á höfuðborgarsvæðinu eða annars staðar á landinu. (Gripið fram í.) Þegar hv. þm. Ásmundur Friðriksson ræðir um frjálsræðiskranann og það þurfi að skrúfa fyrir hann, þá held ég að sé bara nærtækt að gera það í þingflokki Sjálfstæðisflokksins.
En að efni málsins. Rótin, félag um velferð og lífsgæði kvenna, hefur lýst vonbrigðum sínum með að heilbrigðisráðherra hafi horfið frá að gera vörslu neysluskammta vímuefna refsilausa. Afglæpavæðingin svokallaða er ekki valkvæður hluti skaðaminnkunarstefnu heldur lykilþáttur í því að tryggja mannréttindi fólks með vímuefnavanda. Mig langar til að vitna í ályktun Rótarinnar frá 5. maí:
„Refsistefna í lögum, hvernig sem hún er framkvæmd, skaðar vímuefnanotendur, viðheldur fordómum, jaðarsetningu og vinnur gegn mannréttindum. Hún er líka sérstaklega skaðleg konum sem sprauta vímuefnum í æð vegna stöðu þeirra í kynjuðu stigveldi notenda ólöglegra vímuefna.“
Málið er alvarlegt og við erum að verða fyrir óbærilegum fórnarkostnaði vegna þess ópíóíðafaraldurs sem nú ríður yfir samfélagið hér, eins og gerst hefur annars staðar á Vesturlöndum. Það verður að bæta aðgengi að nalaxone-lyfinu. Það verður að koma á fót morfínklíník, með öðrum orðum, öruggu neyslurými fyrir þau sem nota fíkniefni í æð og að sjálfsögðu verður að gera nýjan samning á milli Vogs og Sjúkratrygginga til að hægt sé að veita betri þjónustu. En við skulum líka leggja þann samning á vogarskálar skaðaminnkunarstefnu. Hér þarf að bjarga mannslífum, það verður ekki gert með refsistefnu.