Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 104. fundur,  9. maí 2023.

Notkun ópíóíðalyfja.

[14:40]
Horfa

Halldóra Mogensen (P):

Forseti. Við tölum oft um fíknivanda eins og vímuefnin sjálf séu rót vandans en fíkn er ekki vandi sem verður til vegna neyslu vímuefna. Ópíóíðar eru verkjalyf sem fólk neytir á meðan það verkjar. Flest fólk hættir að nota þessi verkjalyf þegar verkirnir hætta. Vandinn er að hjá vaxandi hópi fólks eru verkirnir ekki einungis á líkama, þjáningin er lífið sjálft, litað af þeim ómeðhöndluðu áföllum sem móta andlega og líkamlega líðan. Fíkn er flóttinn og flóttinn er mjög eðlilegt viðbragð við mannlegri þjáningu.

Eðlileg viðbrögð samfélagsins og stjórnvalda væru að leita leiða til að lina þjáningar, aðstoða fólk við að vinna úr áföllum og græða sár með viðeigandi meðferðarúrræðum, ekki að auka á þjáningu og áföll með jaðarsetningu og refsingum. Refsistefnan, forseti, er að drepa fólk. Ég segi þetta ekki af léttúð. Þetta er ekki bara mitt álit, þetta er það sem reynsla og rannsóknir okkar og annarra landa hafa sýnt okkur. Í skugga refsi- og bannstefnunnar hefur neysla vímuefna aukist jafnt og þétt og vandamálum tengdum neyslunni hefur fjölgað alveg gríðarlega mikið. Í þeim löndum sem hafa farið þá leið að afnema refsistefnuna hefur vandamálum og dauðsföllum tengdum neyslu vímuefna fækkað. Það er bara þannig. Hvernig getum við bara hunsað þessar upplýsingar, hunsað þessi gögn og haldið áfram stefnu sem drepur fólk, bara af því bara? Af því að hvað? Af því okkur finnst óþægilegt að fólk sé að neita vissra vímuefna sem við erum ósammála og finnst að fólk eigi að hætta því. Eigum við að refsa fólki til hlýðni? Það er að drepa fólk, forseti.

Við verðum að hætta þessari firru og taka stefnu byggða á þekkingu, rannsóknum og reynslu. Hættum að handtaka, sekta og taka efnin af vímuefnanotendum. (Forseti hringir.) Hættum að jaðarsetja fólk og förum að beita skaðaminnkandi aðferðum sem bjarga mannslífum.