Notkun ópíóíðalyfja.
Herra forseti. Það er auðvitað þannig í okkar starfi að það geta verið undir gríðarlega miklir hagsmunir fyrir allan almenning og stundum er það þannig, ekki síst þegar kemur að heilbrigðismálunum, að ákvarðanir sem eru teknar hér í þessum sal bjarga mannslífum. Það á svo sannarlega við þegar við erum að ræða ópíóíðafíkn og leiðir til að draga úr þjáningum og dauðsföllum vegna hennar. Þeir sem haldnir eru þessari fíkn eru með sjúkdóm, þetta er heilbrigðisvandi og hann á að leysa sem slíkan. Þeir sem hafa fylgst með þessum málum vita að mjög reglulega blossar upp umræða um að hér sé faraldur í gangi, og er þá gjarnan tengt dauðsföllum, og þá skortir lítið á heitstrengingar um að grípa þurfi til aðgerða. Umræðan sem við erum í núna er því ekki ný af nálinni. Þvert á móti er staðan sú að ástandið versnar ár frá ári.
Það er margt hægt að gera, t.d. að tryggja aðgengi að naloxone-nefúðanum og tryggja örugg neyslurými svo eitthvað sé nefnt, einmitt vegna þess að þetta er heilbrigðisvandi, ekki eitthvað fyrir lögreglu og dómstóla. Það er síðan algjört lykilatriði í mínum huga að ríkisvaldið tryggi í eitt skipti fyrir öll að viðunandi fjármagn sé veitt til SÁÁ til þeirrar lyfjameðferðar sem þessi hópur þarf á að halda. Það gengur ekki upp að ríkið greiði bara fyrir lítinn hluta þessarar tilteknu meðferðar á Vogi, einmitt vegna þess að hættan á ofskömmtun og dauðsföllum er sýnu mest þarna. Ríkið borgar fyrir 90 manns en það eru um 350 manns sem fá meðferðina og mismunurinn er síðan greiddur með sjálfsaflafé samtakanna. Í áraraðir hefur verið kallað eftir því að þarna sé bætt úr. Í áraraðir hafa verið uppi heitstrengingar um að gera það en lítið hefur breyst. Getum við ekki verið sammála um það, nú þegar við sjáum það svart á hvítu að dauðsföllum er að fjölga, að ungum ópíóíðafíklum fjölgar hratt, að tími heitstrenginga sé liðinn og nú sé kominn tími aðgerða? Ef við erum sammála um að aðgerðir okkar hér og atkvæði í þessum sal bjargi stundum mannslífum, skilji á milli lífs og dauða, (Forseti hringir.) þá er mjög erfitt að finna skýrara dæmi um það en einmitt hjá þessum tiltekna hópi.