Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 104. fundur,  9. maí 2023.

Notkun ópíóíðalyfja.

[14:49]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Virðulegi forseti. Ég vil, líkt og aðrir, þakka fyrir þessa umræðu í dag. Þetta er virkilega mikilvæg umræða í ljósi ástandsins í samfélaginu og ég held að við getum öll verið sammála um að þetta sé eitthvað sem við þurfum að ræða hér í þinginu. Það er afar þungbært að heyra af andlátum sem hafa orðið, ekki einungis núna í ár heldur undanfarin ár, vegna ópíóíðafaraldurs og eitt andlát er í rauninni einu andláti of mikið. Við erum því að ræða hér um ógn sem er alveg gríðarlega alvarleg og herjar á samfélagið okkar og afar mikilvægt að við tökum höndum saman og vinnum í átt að því að ná utan um þetta verkefni.

Hér er afar mikilvægt líka að öll ráðuneyti vinni þvert á hvert annað. Við höfum verið að vinna þannig í ríkisstjórninni, þvert á ráðuneyti, brjóta niður síló til að sjá heildarmyndina og koma með heildarúrræði fyrir verkefni sem blasa við. Í þessu máli sem öðrum er það afar mikilvægt og ánægjulegt að heyra að svo sé verið að gera. Það er rétt, eins og hefur komið fram hérna, að það þarf að efla forvarnir enn frekar. Það þarf að auka fræðslu og ekki síður er mikilvægt að hlusta og sýna umhyggju því að þessi faraldur hefur ekki einungis áhrif á einstaklinginn sem neytir ópíóíða heldur hefur hann áhrif á börnin, fjölskyldur, vini og vandamenn, í rauninni allt tengslanetið í kringum einstaklinginn. Því fagna ég því að það sé mikil samvinna við SÁÁ og þriðja geirann því að við stjórnvöld þurfum að hlusta á þessa aðila, þessa sérfræðinga sem hafa úrræðin til staðar og eru að sinna þeim. Það er okkar að efla það enn frekar og því fagna ég vinnunni sem heilbrigðisráðherra hefur verið að sinna undanfarið í tengslum við þetta mál. Það er alveg augljóst að hann er að hlusta.