Notkun ópíóíðalyfja.
Herra forseti. Ég vil byrja á því að þakka fyrir þessa umræðu sem þarf að vera marglaga og taka langan tíma en formið býður því miður ekki upp á það. Það er vissulega mikilvægt að tryggja stuðning við núverandi meðferðarkerfi, þar með talda viðhaldsmeðferð SÁÁ, en það verður líka að bjóða upp á fjölbreyttari nálgun við skaðaminnkun eins og t.d. neyslurými, öruggt húsnæði og fleira. En hvar byrjar vandinn? Við erum að einblína á afleiðingarnar. Hvernig ætlum við að koma í veg fyrir að nærri 37 einstaklingar að meðaltali deyi úr lyfjaeitrun á hverju ári? Hvernig ætlum við sem samfélag að koma í veg fyrir þær hamfarir sem verða þegar 26 einstaklingar undir 44 ára aldri látast úr lyfjaeitrun á hverju ári? Við verðum að spyrja okkur hverju stríðið gegn fíkniefnum, sem einstaka ráðherrar og þingmenn vilja viðhalda, hafi skilað okkur. Við þurfum að þora að horfast í augu við þá staðreynd að sú stefna hefur beðið algjört skipbrot, ekki bara hér heldur um allan heim og veldur hamförum. Fíkn verður ekki fjarlægð með auknum aga í skólakerfinu, grimmari löggæslu eða harðari refsingum. Sársauki og vanlíðan eru oftar en ekki drifkraftur fíknarinnar. Áföll í æsku, jaðarsetning, fátækt og einangrun er eitthvað sem við ættum að einbeita okkur að sem orsakaþáttum fíknar. Fjöldi rannsókna hefur sýnt að aldursskeiðið frá fæðingu til fimm ára aldurs er mikilvægasta æviskeið í tilfinningaþroska barna og segir mikið til um hvernig barninu muni vegna til framtíðar. Um þetta er m.a. fjallað í nýrri aðgerðaráætlun til geðheilbrigðis og því spyr ég hæstv. heilbrigðisráðherra: Er hann tilbúinn til að berjast með okkur að því að sú stefna verði fjármögnuð til þess að þetta skili einhverjum árangri? (Forseti hringir.) Það er ekki nóg að setja orð á blað. Því þurfa að fylgja efndir.