Notkun ópíóíðalyfja.
Virðulegi forseti. Hv. þingmenn. Kæra þjóð. Þetta er mér hjartfólgið umræðuefni; fíkniefni og alkóhólismi yfirleitt sem samnefni yfir slíkt. Ég þekki þetta vel af eigin raun undanfarin 42 ár. Ég myndi segja að það væri ekki illa farið með fé ef það væri opinn tékki til SÁÁ, Hlaðgerðarkots og Krýsuvíkur, bara til gera það sem þeir telja nauðsynlegt til að hjálpa þeim sem eiga við vanda að stríða. En það eru fleiri sem þarf að hugsa um. Það eru þeir sem eru í neyslu í dag en eru ekki orðnir háðir fíkniefnum og svo eru það þeir sem ekki eru byrjaðir í neyslu af neinu tagi. Það þarf að efla forvarnir þannig að fólk freistist ekki til þess að byrja að nota fíkniefni í nokkrum mæli. Nancy Reagan var úthrópuð fyrir það að segja: „Say no to drugs.“ Hún meinti þá að þeir sem ekki eru byrjaðir að neyta eigi að segja nei, ekki þeir sem eru byrjaðir að neyta því að það þýðir ekkert fyrir þá að segja nei ef þeir eru orðnir háðir þessu. En það verður aldrei hægt að eyða nógu miklum peningum í það að hjálpa þeim sem eiga við veruleg vandamál að stríða. Ólafur, vinur minn, dó fyrir nokkrum mánuðum síðan. Hann var búinn að reyna í mörg ár að ná árangri og það var bara vegna þess að hann tók of stóran skammt í eitt skipti þegar hann hélt að hann væri að skemmta sér. Þetta er stór vandamál í okkar þjóðfélagi í dag. Því segi ég: Opinn tékka til SÁÁ, Hlaðgerðarkots og Krýsuvíkur og þeirra sem eru að vinna í þessum málum af einhverju viti. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)