Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 104. fundur,  9. maí 2023.

Notkun ópíóíðalyfja.

[14:56]
Horfa

Jódís Skúladóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Ég er ánægð með þessa umræðu í dag, við þurfum svo mikið á henni að halda. Við höfum ólík sjónarmið. Við erum öll sammála um að staðan er skelfileg en við skulum fara varlega í það að væna hvert annað hér um eitthvað sem ekki er satt. Mig langar að svara fyrir það að hv. þm. Inga Sæland ætlaði mér eftir fyrri ræðu mína, að vilja leggja niður SÁÁ. Það er alrangt. SÁÁ er mjög mikilvægur hlekkur í þessum fræðum en við skulum þó alveg átta okkur á því að SÁÁ er ekkert undanskilið öðru því sem ríkið styrkir. Það þarf að vera gert af fagmennsku. Við þurfum að fá úttekt á biðlistum, á þörfinni, á fjárþörfinni. Við getum ekki látið þá sem þiggja greiðslurnar segja okkur það og spyrja engra spurninga og þetta hef ég margoft komið inn á í ræðum. Hér hefur líka komið upp fólk og sagst þekkja málin vel. Ég veit ekki hvort það sé þá til að benda á að aðrir þekki þau illa. Ég veit það bara ekki. Sjálf er ég aðstandandi. Ég hef notað þjónustu SÁÁ. Ég hef misst mína nánustu, hálfsystur og mágkonu, úr fíknsjúkdómum og í báðum tilfellum kom upp alvarleg staða vegna löglegra lyfja. Það þarf enginn að segja mér það að ég þekki ekki til. Ég kem bara hér aftur og aftur, í umræðu eftir umræðu, til að segja ykkur að við þurfum aðra nálgun. Við þurfum annan hugsunarhátt. SÁÁ er gagnlegt og gott batterí. SÁÁ virkar bara ekki fyrir alla og SÁÁ á ekki að einoka þetta málefni. Við þurfum fagmennsku, við þurfum fjölbreytt úrræði. Það er allt önnur þjónusta (Forseti hringir.) sem sextugur sídrykkjumaður til áratuga þarf heldur en barn rétt skriðið af fermingaraldri. (Forseti hringir.) Við þurfum fjölbreytt úrræði og til að geta mótað þau (Forseti hringir.) þurfum við heildarúttekt sem ég kalla enn og aftur eftir hér.