Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 104. fundur,  9. maí 2023.

Notkun ópíóíðalyfja.

[15:01]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V):

Virðulegur forseti. Við vitum að mörg þurfa sterk verkjalyf eftir slys eða aðgerð, en mögulega sökum anna í heilbrigðiskerfinu er eftirfylgni með notkun og aðstoð við að hætta á slíkum lyfjum ábótavant. Ég tók eftir því í fréttum RÚV á sunnudaginn að þar var nefndur læknir, Kjartan Þórsson, sem er að þróa nýtt forrit sem myndi hjálpa læknum að fylgjast með sjúklingum sem þeir hafa ávísað sterkum lyfjum á og sjá til þess að þeir fái bæði þau lyf sem þeir þurfa og minnki svo skammtinn þegar sársaukinn minnkar. Kjartan Þórsson nefnir að því lengur sem fólk er á þessum háu lyfjaskömmtun, því útsettari er það fyrir að ánetjast þessum lyfjum. Kerfið virkar þannig að áætlun er sett um meðferð viðkomandi og skammturinn minnkaður með tímanum og hægt er að fylgjast með í einföldu appi. Frábært ef satt reynist.

En svo er hitt, virðulegur forseti, að það eru mörg sem nota þessi lyf, ekki vegna þess að þau eru í verkjameðferð heldur vegna þess að þau hafa ánetjast vímuefnum. Þennan hóp þarf að umgangast af umburðarlyndi. Þessum hópi þarf að mæta þar sem hann er af virðingu. Eftir samtöl mín við fólk sem vinnur með þessum hópi fólks er ljóst að þau verða vör við fordóma víða í samfélaginu og því langar mig til að hvetja til þess að aukið verði við fræðslu, m.a. í heilbrigðiskerfinu, um þarfir þessa hóps og hvernig best er að mæta honum. Þau þurfa þjónustu nákvæmlega eins og við hin. Við vitum heldur ekki hvenær einhver nákominn eða við sjálf lendum í klóm fíkninnar. Það ætlar sér enginn að verða fíkill en staðreyndin er sú að sum okkar verða það.