Notkun ópíóíðalyfja.
Herra forseti. Ég held áfram þar sem frá var horfið. Ég var að tala um viðbrögð ríkisstjórnarinnar sem í þessu máli og allt of mörgum öðrum eru iðulega til komin eftir að vandinn blasir við og er orðinn stór. Þá er reynt að fara í að gera einhverjar ráðstafanir. Hvað þetta varðar þá þarf að huga að öllu ferlinu. Það þarf að fjárfesta miklu meira í forvörnum, það þarf að senda skýr skilaboð um hvað teljist í lagi og hvað ekki og það verður að fjárfesta í meðferðarúrræðum. Jafnvel þótt menn væru bara að huga að kostnaðinum, að peningunum, þá eru forvarnir og meðferðarúrræði góð fjárfesting. En það þarf líka að gefa fólki aukið tækifæri til að ná sér á strik þegar það hefur farið í gegnum meðferð. Eitt af því sem við ættum að hugleiða og hrinda í framkvæmd er að fólk sitji ekki uppi með fíkniefnabrot á sakaskrá jafnvel árum eða áratugum saman eftir að hafa farið í meðferð og náð sér á strik og vilja byggja sig upp en eiga þá jafnvel erfitt með að fá vinnu og eiga á hættu að detta aftur í fyrra horf. Við ættum líka að hugleiða það sem sums staðar er gert, að þegar menn fremja afbrot undir áhrifum vímuefna þá sé hægt að dæma þá í meðferð. Þá kunna einhverjir að segja að það sé ómögulegt því að það þýði ekkert að fara í meðferð nema viðkomandi vilji það sjálfur. En það getur stundum þurft hvatann til að vilja, það þurfa að vera til staðar tækifæri fyrir foreldra, fyrir lögreglu og aðra að grípa inn í og hjálpa þeim sem eru ekki í ástandi til að meta eigin stöðu og eigin framtíð. Við megum ekki gefa frá okkur alla möguleika samfélagsins á að grípa inn í og hjálpa fólki sem þarf utanaðkomandi aðstoð.