aðgerðaáætlun um þjónustu við eldra fólk fyrir árin 2024--2028.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir andsvarið. Ég er ekki sammála. Hér er verið að stíga mikilvæg skref. Við erum búin að greina það. Það vantar úrræði en við höfum líka áttað okkur á því að við getum ekki mokað peningum og byggt fleiri og fleiri hjúkrunarheimili, af því að það er ekki það sem fólk þarf og vill. Þess vegna er í þessari aðgerðaáætlun stefnt að því að einstaklingar fái að halda virði sínu og reisn með því að búa heima lengur. Í staðinn fyrir að eyða fjármagni í steinsteypu, hjúkrunarheimili sem fólk jafnvel óskar sér ekkert sérstaklega að fara á, þá verður veitt fjármagn í það að styðja fólk við lengri búsetu heima. Það er raunveruleg fjármögnuð aðgerð sem tekur á raunverulegum vanda. Ég tek því ekki undir að hér sé ekki verið að gera neitt nema framkvæma einhverja hugmyndafræði, skoðun og stefnumótun. Í þessari áætlun eru raunverulegar aðgerðir til að bæta líf og hag eldra fólks.