aðgerðaáætlun um þjónustu við eldra fólk fyrir árin 2024--2028.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvar og ítreka það sem kom fram í mínu fyrra andsvari. Ég get ekki sagt það skýrar: Hér eru fjármagnaðar aðgerðir til þess að bæta stöðu og líf eldra fólks. Þetta eru ekki bara falleg orð á blaði. Sum verkefnin hafa nú þegar komið til framkvæmda, byrjað er að vinna í sumum flokkum áætlunarinnar, og þau eru tímasett og fjármögnuð.
Ég vil nota nokkur orð til að lýsa því sem við erum að gera, af því að hér er talað um falleg orð: Valdefling, forvarnir, lýðheilsa og virðing. Þetta eru allt falleg orð sem tímasett og fjármögnuð aðgerðaáætlun í málefnum eldra fólks mun koma til framkvæmda.