myndlistarstefna til 2030.
Frú forseti. Ég mæli fyrir hönd meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar fyrir nefndaráliti um tillögu til þingsályktunar um myndlistarstefnu til ársins 2030.
Með þingsályktunartillögu þessari er menningar- og viðskiptaráðherra falið að vinna að framkvæmd stefnu og aðgerðaáætlunar í myndlist sem miði að því að efla myndlistarmenningu landsins og auka áhuga og þekkingu almennings á myndlist. Myndlistarstefnan byggist á fjórum meginmarkmiðum sem nánar er gerð grein fyrir í tillögunni og eiga það sameiginlegt að stuðla að umbótum og jákvæðum breytingum svo framtíðarsýn stefnunnar verði að veruleika. Samhliða myndlistarstefnunni er lögð fram aðgerðaáætlun í 18 liðum til að tryggja framgang myndlistar í landinu en nánari grein er einnig gerð fyrir þeim í þingsályktunartillögunni.
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund gesti. Þá bárust nokkrar umsagnir um málið en nánar er greint frá því í nefndaráliti sem liggur frammi. Einnig barst nefndinni minnisblað frá menningar- og viðskiptaráðuneytinu. ---------- Meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar fagnar fram kominni tillögu til þingsályktunar um myndlistarstefnu til ársins 2030 og telur brýnt að hún nái fram að ganga. Þá voru umsagnaraðilar jákvæðir í garð stefnunnar og fagna því að lögð sé fram opinber stefna um myndlist í fyrsta sinn, enda brýnt að stjórnvöld marki sér skýra stefnu í málaflokknum sem endurspegli jafnframt samfélagslegt gildi myndlistar. Meiri hlutinn tekur undir mikilvægi þess að stefna stjórnvalda í málaflokknum sé skýr, enda sé það til heilla fyrir hina kraftmiklu og lifandi myndlistarmenningu og myndlistarstarfsemi sem tíðkast hér á landi.
Umfjöllun nefndarinnar laut annars fyrst og fremst að tveimur atriðum, annars vegar var rætt um skattumhverfi myndlistar og hins vegar um ráðstafanir gegn málverkafölsunum.
Í fyrsta lagi varðandi skattumhverfi myndlistar, þá er í 11. tölulið aðgerðaáætlunar með myndlistarstefnu lagt til að gerð verði ítarleg greining á þeim möguleika að færa myndlist í 11% virðisaukaskattsþrep. Samkvæmt virðisaukaskattslögum eru listamenn undanþegnir virðisaukaskattsskyldu að því er varðar sölu á þeirra eigin verkum, enda falli þau undir ákveðin tollskrárnúmer, sbr. 2. tölulið 4. gr. laga um virðisaukaskatt. Einhverjir umsagnaraðilar lýstu yfir áhyggjum af því að það kynni að hafa letjandi áhrif á myndlistarmenn yrði starfsemi þeirra gerð virðisaukaskattsskyld, yki á flækjustig og drægi úr framleiðni og lögðu því áherslu á að ekki skyldi færa myndlist í 11% virðisaukaskattsþrep nema að yfirstaðinni ítarlegri greiningu á kostum þess og göllum.
Þá var bent á það fyrir nefndinni að flutningskostnaður listaverka til landsins félli undir 24% virðisaukaskatt og hvatt til þess að slíkur flutningur yrði gerður gjaldfrjáls, enda fjöldi íslenskra listaverka staðsettur erlendis. Jafnframt var vakin athygli á nauðsyn þess að lækka svonefnd fylgiréttargjöld af endursölu upprunalegs listaverks úr 10% í 5%, sbr. 25 gr. b höfundalaga, til samræmis við önnur Evrópulönd en gjaldið sé hvergi hærra en hér á landi.
Nefndin fjallaði einnig um mögulegar útfærslur á því að koma á virðisaukaskattsskyldu á sviði myndlistar, til að mynda með því að taka upp einhvers konar hvatakerfi þar sem fólk yrði hvatt til að kaupa myndlist en allir gætu síðan sótt um endurgreiðslu virðisaukaskatts á keyptum verkum, líkt og tíðkast til að mynda í Hollandi. Meiri hluti nefndarinnar leggur áherslu á það í þessu sambandi að starfshópurinn, sem mælt er fyrir um í 11. tölulið aðgerðaáætlunar og er ætlað er að meta mögulegar breytingar á skattumhverfi myndlistar, horfi til þeirra sjónarmiða sem fram komu við þinglega meðferð málsins.
Þá fjallaði nefndin í öðru lagi um ráðstafanir gegn málverkafölsunum en ekki er vikið sérstaklega að þeim í stefnu og aðgerðaáætlun um myndlist. Umsagnaraðilar vöktu athygli á þeim vanda sem málverkafalsanir hafa í för með sér á íslenskum listaverkamarkaði og kölluðu eftir umfjöllun og aðgerðum í þeim málaflokki. Þá var nokkuð fjallað um að lagaheimildir skorti til að gera fölsuð listaverk upptæk og farga þeim og kallað var eftir því að starfsemi starfshóps til að vinna að ráðstöfunum gegn málverkafölsunum, sem komið var á fót árið 2015 á grundvelli þingsályktunartillögu nr. 40/143 frá árinu 2014, yrði endurvakin.
Menningar- og viðskiptaráðuneytið bendir á það í minnisblaði sínu til nefndarinnar að þegar hafi verið skipaður starfshópur til að bregðast við málverkafölsunum árið 2004 í kjölfar dóms Hæstaréttar í máli nr. 325/2003, sem kallað hefur verið „stóra málverkafölsunarmálið“. Sá starfshópur hafi bent á að ákveðin úrræði væru fyrir hendi í höfundalögum sem væru til þess fallin að sporna við því að fölsuð málverk séu í umferð en hefði ekki verið beitt við rannsókn og saksókn umrædds máls. Í ljósi þess að tiltekin úrræði eru þegar fyrir hendi í lögum telur ráðuneytið óþarft að svo stöddu að aðhafast um frekari úrbætur á því sviði.
Meiri hluti nefndarinnar fagnar ábendingum umsagnaraðila um úrbætur á sviði málverkafalsana en tekur á hinn bóginn undir framangreind sjónarmið ráðuneytisins um að fullnægjandi úrræði séu fyrir hendi í lögum til að hamla því að fölsuð listaverk séu í umferð. Þá telur meiri hlutinn rétt að árétta að í greinargerð með þingsályktunartillögu nr. 40/143 var fjallað um að listaverkafalsanir feli í sér blekkingar og séu til þess fallnar að hafa fé af fólki með ólögmætum hætti og eigi því að varða við 248. gr. almennra hegningarlaga.
Virðulegi forseti. Að framansögðu virtu leggur meiri hluti nefndarinnar til að tillagan verði samþykkt óbreytt.
Undir álit meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar rita, auk þess sem hér stendur, háttvirtir þingmenn Birgir Þórarinsson, Bryndís Haraldsdóttir, Helga Vala Helgadóttir, Jódís Skúladóttir og Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir. — Ég hef lokið máli mínu.