orðspor Íslands vegna hvalveiða.
Virðulegi forseti. Fyrir liggur skýrsla Matvælastofnunar um hvalveiðar við Íslandsstrendur og rennir hún tvímælalaust stoðum undir það sem við höfum lengi vitað; að þessar veiðar eiga auðvitað að heyra fortíðinni til. Notaðar eru frumstæðar aðferðir og ósiðlegar. Þær fara gegn dýraverndarlögum og eiga einfaldlega ekki að sjást lengur miðað við nútímakröfur. Dýrin þjást í margar mínútur eftir sprengiskutla og oft fleiri en einn. Matvælastofnun hefur nú staðfest að veiðarnar uppfylli ekki markmið laga um dýravelferð. Við hljótum því að spyrja: Hvert er planið?
Erlendir og innlendir fjölmiðlar hafa þegar hafið umfjöllun um væntanlegar veiðar í sumar, eðlilega. Stór hluti heimsbyggðarinnar lítur á hvalveiðar sem dýraníð og Íslendingar gera það líka. Skoðanakönnun frá því í fyrra gefur til kynna að um 65% Íslendinga telji hvalveiðar hafa neikvæð áhrif á orðspor landsins. Hæstv. matvælaráðherra telur sig ekki hafa heimild til að afturkalla leyfi Hvals hf. til að stunda þessar frumstæðu veiðar sem ég og fleiri lögfróðir teljum hins vegar að sé ekki rétt. Hún getur a.m.k. afturkallað leyfið tímabundið, m.a. á grundvelli leyfisveitingarinnar sjálfrar og niðurstöðu þessarar skýrslu.
Ég hlýt hins vegar að spyrja hæstv. utanríkisráðherra: Hvernig á að skýra málið fyrir umheiminum? Hluti af ábyrgð utanríkisráðherra er að gæta orðspors Íslendinga. Hvernig á að skýra málið fyrir umheiminum á meðan tugir eða hundruð hvala hljóta kvalafullan dauðdaga hér í sumar og heimspressan sýnir beint frá? Til hvaða aðgerða ætlar hún að grípa til að verja alþjóðlegt orðspor okkar ef halda á þessum algerlega óverjandi veiðum áfram í boði ríkisstjórnarinnar? Ég vil einfaldlega fá hennar persónulega mat á því. Telur hún rétt pólitískt og siðferðilega að halda áfram með þessar hvalveiðar sem eru, eins og ég segi, í boði ríkisstjórnarinnar og eiga greinilega að halda áfram? Hver er hennar skoðun á hvalveiðum? (Forseti hringir.) Telur hún rétt, m.a. á grunni þeirra upplýsinga sem nú liggja fyrir, að halda áfram með þessar óverjandi veiðar?