orðspor Íslands vegna hvalveiða.
Herra forseti. Fyrst vil ég nefna að hvalveiðar heyra ekki undir málefnasvið utanríkisráðherra en utanríkisþjónustan lætur sig málefnið vissulega varða enda lögbundið hlutverk hennar að gæta í hvívetna hagsmuna Íslands, eins og hv. þingmaður kom inn á, gagnvart öðrum ríkjum og þar með talið að standa vörð um orðspor lands og þjóðar. Niðurstöður í þessari nýútkomnu skýrslu MAST fyrir matvælaráðuneytið eru dapurleg lesning en meginatriði skýrslunnar er að bæði hlutfall dýra sem drepst strax og tími til dauða þeirra dýra sem ekki drepast strax sé mun verra en var samkvæmt rannsókn sem var gerð árið 2014. En í tilkynningu MAST er sérstaklega tiltekið að ákvæði um veiðar í lögum um velferð dýra hafi ekki verið brotið og það skiptir máli. Ég tel rétt að árétta að ábyrgðin liggur hjá þeim sem stunda hvalveiðar. Það er þeirra skylda að bregðast við þessari skýrslu og tryggja að sjónarmiðum um dýravelferð við veiðarnar sé gætt. Ég sé svo sem að nú þegar hefur verið brugðist við því að einhverju leyti.
Í samhengi orðsporsáhættu er að sama skapi rétt að hafa í huga að það er ekki íslenska ríkið eða þjóðin sem standa fyrir hvalveiðum til að afla afurða fyrir heimsmarkaði heldur eitt tiltekið fyrirtæki sem stundar veiðarnar til útflutnings. En auðvitað erum við meðvituð um að þau vinnubrögð og veiðiaðferðir sem skýrslan leiðir í ljós er um þessar mundir umfjöllunarefni í fjölmiðlum erlendis og athygli sem beinist að Íslandi vegna þess er ekki jákvæð. Við í ráðuneytinu höfum undirbúið okkur fyrir þessa umfjöllun og fylgjumst grannt með henni. Enn sem komið er hefur verið lítið fjallað um skýrsluna í heimspressunni og á samfélagsmiðlum. Sendiskrifstofum okkar hafa ekki borist tölvupóstar eða símtöl frá almenningi í neinum mæli en það getur auðvitað breyst, enda aðeins tveir sólarhringar síðan skýrslan var birt. Sömuleiðis má ímynda sér að aukin athygli á Íslandi núna eftir örfáa sólarhringa sé hægt að nýta, (Forseti hringir.) þann grunn eða það svið sem þar verður til, til að koma því á framfæri.
Ég get alveg sagt fyrir mitt leyti að mér þykir (Forseti hringir.) siðferðislega réttlætanlegt að stunda sjálfbærar hvalveiðar eins og aðrar veiðar. En það þarf að vera gert með réttum hætti. (Forseti hringir.) Svo þarf að vega það og meta í hvert sinn hvort það er efnahagslega skynsamlegt út frá framboði og eftirspurn og öðrum áhrifum.
(Forseti (BÁ): Forseti minnir á að ræðutími er takmarkaður, bæði í fyrirspurnum og svörum.)