Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 105. fundur,  10. maí 2023.

hvalveiðar og orðspor Íslands.

[15:09]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Mér finnst gott að heyra að það eru einhverjar efasemdir í kolli utanríkisráðherra. Alla vega er það þannig að þau eru byrjuð að undirbúa þá umfjöllun sem kann að verða í heimspressunni. Hitt er síðan að það er náttúrlega kúnstugt, talandi um flokk frelsisins, Sjálfstæðisflokkinn — af öllum þeim frelsismálum sem m.a. Viðreisn hefur lagt fram, hvort sem er valfrelsi í heilbrigðismálum, aukið frelsi á lyfjamarkaði og það er hægt að tala um frelsi á svo víðum grundvelli — þá er það akkúrat þetta mál sem flokkurinn velur að standa vörð um. Frelsi eins manns til að veiða hval á mjög ósiðlegan og óverjandi hátt. Mér finnst vont að heyra ekki alveg skýr skilaboð af hálfu ráðherra um að það eigi einfaldlega að stöðva þessar veiðar. Það eru ekki hagsmunir okkar Íslendinga að halda áfram þessum veiðum. Auðvitað finnst mér það kannski líka bara eftir bókinni að flokkurinn ætlar að standa vörð um frelsi í atvinnugrein sem að mínu mati heyrir fortíðinni til. (Forseti hringir.)

Ég vil hvetja hæstv. ráðherra að gefa út skýr skilaboð um að við ætlum ekki að halda áfram þessum hvalveiðum. (Forseti hringir.) Tækifærið er hjá ríkisstjórninni sem er núna undir forystu Vinstri grænna og það er kaldhæðnislegt ef við ætlum að halda áfram þessum veiðum í þeirra boði.