húsnæði fatlaðs fólks.
Forseti. Við höfum átt í smá erfiðleikum með að klára innleiðingu á lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir og við erum ekki enn komin alla leið. Þegar lögin voru innleidd var kostnaðarmatið þar á bak við vægast sagt vanáætlað. Reykjavíkurborg sendi umsögn þegar málið var afgreitt hérna á þingi sem benti til þess að kostnaðurinn yrði miklu, miklu meiri og raunin virðist vera sú að það sé að raungerast. Núna í hádeginu kom frétt þar sem talað er við Þroskahjálp og upplýsingafulltrúi Þroskahjálpar bendir einmitt á vandamál, húsnæðisvandamál eins og eru nú landlæg hérna, húsnæðisvandamál fatlaðra þar sem margir þurfa að bíða í mörg ár, ef ekki áratug, eftir viðunandi húsnæði. Haft er eftir talsmanni Þroskahjálpar, með leyfi forseta:
„Það er náttúrulega bara þungt að vera talað um það sem við teljum almenn og mikilvæg mannréttindi sem byrði og kostnað.“
Fyrir tæpum fimm árum voru undirritaðar nokkrar reglugerðir um þessa bættu þjónustu við fatlað fólk, það átti að stytta biðlista og tryggja þetta aðgengi. Það var fyrir tæpum fimm árum síðan. Ég velti því fyrir mér, fyrst að ríkisstjórnin hefur ekki enn þá náð að klára í rauninni innleiðinguna, t.d. hvað varðar NPA-samningana, hvað þarf eiginlega til? Hver er að stoppa þessa innleiðingu? Hvað þurfum við að gera til að klára þetta verkefni, þetta sjálfsagða verkefni fyrir fólk sem hefur það sem allra erfiðast í samfélaginu?