húsnæði fatlaðs fólks.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Ég vil bara byrja á að taka undir það með hv. þingmanni að það kostnaðarmat sem var gert á sínum tíma hefur ekki gengið eftir, eins og við öll vitum. Það er mjög mikilvægt að unnin var allítarleg skýrsla sem kom út fyrir u.þ.b. ári um kostnað við þjónustu við fatlað fólk. Á grundvelli hennar settum við síðan í gang vinnu með sveitarfélögunum sem koma að, ráðuneytinu hjá mér, fjármála- og efnahagsráðherra, sveitarfélögunum o.fl., til að reyna að greiða úr því hvernig kostnaðarskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga yrði háttað í framhaldinu. Stjórnvöld settu á þessu ári 5 milljarða í málaflokkinn til að mæta hluta af þeim kostnaðarauka, getum við sagt, sem hefur orðið hjá sveitarfélögunum og ég tel að það hafi verið mikilvægt skref.
Við bíðum núna eftir því að sjá með hvaða hætti þessi ágæti starfshópur mun skila af sér og vonandi fáum við þá meiri fyrirsjáanleika og meiri festu í það með hvaða hætti þessi kostnaður mun skiptast á milli sveitarfélaga og ríkisins. Þetta tengist að ákveðnu marki húsnæðismálum fatlaðs fólks. Eins og kemur ágætlega fram í þeirri frétt sem hv. þingmaður vitnar í vantar líka fyrirsjáanleika á biðlistum hjá sveitarfélögunum þannig að fólk viti alla vega hvar það er í röðinni. Auðvitað getur komið meira fatlaður einstaklingur sem þarf að fara framar í röðina en ég held að þetta sé eitthvað sem hægt sé að taka betur á. Svo er auðvitað, í þeim áætlunum sem innviðaráðherra hefur kynnt um rammasamninga við sveitarfélögin, ákveðið hlutfall til félagslegs húsnæðis og þarf líka að skoða það í þessu samhengi.