Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 105. fundur,  10. maí 2023.

húsnæði fatlaðs fólks.

[15:17]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Á meðan ríki og sveitarfélög eru að karpa um það hvernig kostnaðarskipting á að vera þá bíður fólk sem þarf á þjónustunni að halda. Mér finnst það ekki vera sanngjörn leið til þess einhvern veginn að afsaka biðina því að vandamálið er það sama. Á ríkið að leysa vandamálið eða eiga sveitarfélögin að leysa vandamálið? Saman hljóta þau að þurfa að leysa vandamálið. Alla vega hvað varðar okkur á Alþingi er ekki búið að klára þetta, það strandar á lögunum eins og þau eru varðandi fjölda samninga. Ríkið setur takmark á það hversu mikið á að borga, hversu marga samninga — í rauninni ekki hversu marga samninga heldur upphæðina sem er enn verra því það er vanáætlaður kostnaður á bak við. Það eru því í raun færri samningar sem eru fjármagnaðir. Þetta er bara afsökun: Nei, við komumst ekki að niðurstöðu um það hver á að borga þetta (Forseti hringir.) og þar af leiðandi þurfa allir þeir sem þurfa á þjónustunni að halda að bíða. Ég tel það ekki vera ásættanlega útskýringu.