sala upprunavottorða.
Hæstv. forseti. Það er komin upp vandræðaleg staða vegna útgáfu og sölu upprunaábyrgða á raforku sem framleidd er hér á landi. Evrópsk samtök útgefenda upprunaábyrgðanna fullyrða að hér á landi sé vinnsla grænnar orku tvítalin. Orkumálastjóri segir að stofnunin hafi engin úrræði til að grípa inn í en lengi hafi verið bent á að úrbóta sé þörf. Á það var reyndar einnig bent í gagnmerkri skýrslu sem Hrafnhildur Bragadóttir og Birna Hallsdóttir unnu fyrir atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið árið 2016. Meginniðurstaða hennar var að hætta sé á tvítalningu í núverandi kerfi hér á landi. Upprunaábyrgðir eru sjálfstæð söluvara án tengsla við uppruna orkunnar. Það má velta því fyrir sér hvort þetta sé einhvers konar kapítalísk snilli eða bara hugmynd sem vekur óþægileg hugrenningatengsl við aðrar fjármálaafurðir eins og vafninga. En skilyrði þess að kerfi með upprunaábyrgðir þjóni markmiði sínu er að aðeins sé gefin út ein upprunaábyrgð á hverja einingu eða hverja megavattstund. Ég fullyrði að staðan sem komin er upp hefur neikvæð áhrif á ímynd og trúverðugleika Íslands sem raforkuframleiðenda en einnig inn á við af því að það stríðir gegn almennri skynsemi fólks að sala á upprunaábyrgðum valdi því í okkar lokaða raforkukerfi að uppruni orkunnar sé tilgreindur sem kjarnorka eða kol. Skráninguna þarf augljóslega að laga og þessi staða bakar orkuframleiðendum hér á landi auðvitað tjón. En handan við þessa stöðu er hins vegar önnur spurning sem þarf að svara: Erum við komin þangað að öll fyrirtæki sem selja vöru og fullyrða að hún sé framleidd með grænni raforku þurfi framvegis að kaupa vottaða upprunaábyrgð?