sala upprunavottorða.
Hæstv. forseti. Það er alltaf gaman að þessari umræðu um Evrópusambandið. Málið er að þátttaka í þessu kerfi er valkvæð og íslenskir raforkuframleiðendur velja að selja upprunaábyrgðirnar. En það sem hefur klikkað hér á landi er greinilega skráningin því annars værum við ekki í þessari stöðu. Þar koma stjórnvöld inn og þar, eins og orkumálastjóri benti á, þurfa að vera til úrræði til að grípa í taumana ef við stöndum frammi fyrir því að um tvítalningu sé að ræða. Það er svo bara allt önnur saga hvort okkur finnist að þetta kerfi sé þannig hannað að það nái settum árangri, sem á víst að vera að auka hlutdeild endurnýjanlegrar orku á raforkumarkaðnum í Evrópusambandinu. Það eru kapítalistar úti um allt, hæstv. forseti, líka í Evrópusambandinu. Staðan hér heima er sú sem snýr að ábyrgð ráðherrans. Það þarf því að bregðast þannig við að fyrirtækjunum hér á landi sé ekki bakað óhóflegt tjón vegna þessarar stöðu.