Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 105. fundur,  10. maí 2023.

sala upprunavottorða.

[15:25]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S):

Virðulegi forseti. Nú er ábyrgðin farin frá kapítalismanum yfir á ráðherrann. Ég bið bara hv. þingmann aðeins að hafa sig hæga þegar við ræðum þessi mál. Þetta er eitthvað sem þessi fyrirtæki tóku þátt í. Ég man ekki eftir umræðu um það þegar ákveðið var að fara í það, þetta er svo sannarlega mikið og opinbert fyrirtæki og fyrirtæki hljóta að taka ábyrgð á sínum gjörðum. Ég veit ekki til þess að þetta séu — og hef ég oft beitt mér fyrir því að hjálpa þeim sem minnst mega sín í þessu samfélagi og mun halda því áfram. Þessi fyrirtæki eru ekki þar. En síðan þurfum við — það er tvennt og það sem við erum að gera er að við erum að skoða þá stöðu sem þarna er uppi og meta það hvort og hvers konar áhætta er fyrir íslenska þjóð ef eitthvað slíkt er uppi. En síðan er hitt, og ég hvika ekkert frá því, að við þurfum að ræða þetta fyrirkomulag sem er komið frá Evrópusambandinu — sem er komið frá Evrópusambandinu, ef hv. þingmaður hefur gleymt því.