Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 105. fundur,  10. maí 2023.

embætti hagsmunafulltrúa aldraðra.

[15:27]
Horfa

Jakob Frímann Magnússon (Flf):

Virðulegur forseti. Þann 13. júní árið 2021 voru einungis sjö þingmenn fjarstaddir en 56 viðstaddir í þessum sal þegar einróma var samþykkt sú tillaga að stofna skyldi embætti hagsmunafulltrúa eldri borgara. Löggjafinn ákvað þetta fyrir tæpum tveim árum síðan. Þetta voru stórtíðindi. Þeim var fagnað um gjörvallt samfélag, sérstaklega meðal þeirra sem byggðu upp það velferðarsamfélag sem við búum við í dag og við getum haft mörg fögur orð um. Flokkur fólksins fagnaði þessu alveg sérstaklega því að í þessari samþykkt þingheims kristallaðist uppskera starfs flokksins í þau fjögur ár sem hann hafði starfað hér á þinginu og miklar þakkir voru veittar þeim sem þarna stóðu saman um málið. Skipaður skyldi hópur er skila skyldi fyrir 1. apríl 2022 tillögum um hvers konar umfang, fjármögnun og annað, skyldi útfærast með þessari þingsamþykkt. Það gekk reyndar ekki eftir. 1. apríl var það ekki, það var ekki aprílgabb en það var ekki staðið við fyrirheitin um að skila inn þeim tillögum er skyldi taka mið af. Í dag erum við að fjalla um tillögu sem er um margt ágæt en engan veginn það sem sammælst var um. Ég treysti því að hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra sé maður orða sinna og efnda. (Forseti hringir.) Ef þingið stendur ekki við fyrirheit sín og orð, hvernig getum við ætlast til þess að aðrir í samfélaginu geri það?

Nú vil ég spyrja hæstv. ráðherra: Er ekki alveg skýrt (Forseti hringir.) að þessi hagsmunafulltrúi eldra fólks er óklárað verk, með fullri virðingu fyrir því sem hér verða greidd atkvæði um í dag?